Lífið

Litlar stúlkur í prinsessubúningum segja "fuck“ til að vekja athygli á femínisma

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Nýtt myndband þar sem ungar stúlkur sjást blóta hægri vinstri klæddar í prinsessubúninga hefur farið eins og eldur um sinu um internetið.

Myndbandið er búið til til að vekja athygli á kynjamisrétti. Þeirri spurningu er velt upp í myndbandinu hvort sé meira móðgandi að lítil stúlka segi „fuck“ eða hvernig þjóðfélagið komi fram við stúlkur og konur.

Myndbandið er búið til af FCKH8, fyrirtæki sem framleiðir boli fyrir hin ýmsu málefni. Rennur hluti af ágóða bolasölunnar í gott málefni. 

Potty-Mouthed Princesses Drop F-Bombs for Feminism by FCKH8.com from FCKH8.com on Vimeo.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×