Lífið

Litla flugan leikin

Anna Mjöll átti vel heppnaða tónleika á Rosenberg.
Anna Mjöll átti vel heppnaða tónleika á Rosenberg. Vísir/Vilhelm
Mikil gleði var á Café Rosenberg á mánudagskvöldið þegar Anna Mjöll Ólafsdóttir kom þar fram fyrir fullu húsi, ásamt stórhljómsveit.

Bandaríski trommuleikarinn Dave Weckl, sem er talinn vera einn sá albesti í heiminum, tók nokkur lög með Önnu Mjöll og hljómsveitinni en fyrsta lagið sem hann lék var einmitt lagið Litla flugan. Weckl þekkti lagið líklega lítið en átti þó stórleik. Þá ætlaði allt um koll að keyra þegar hann tók magnað trommusóló undir lokin.

Dave Weckl er talinn vera einn albesti trommuleikari í heimi.Vísir/Getty
Weckl var staddur hér á landi og var hér með trommukennslu og fyrirlestur á sunnudag og mánudag. Hann og Anna Mjöll þekkjast úr tónlistarsenunni í Los Angeles og því kjörið að Weckl skydi taka nokkur lög með henni fyrst hann var staddur hér á landi.

Hér fyrir neðan má sjá myndband af Dave Weckl í góðum gír ásamt hljómsveit. Þar má sjá brot af þeirri ótrúlegu hæfni sem kappinn býr yfir.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×