Innlent

Lítil flugvél nauðlenti í Heiðmörk

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Frá vettvangi.
Frá vettvangi. Vísir/HKS
Lítilli flugvél var nauðlent á Heiðmerkurvegi rétt eftir hádegi í dag. Einn var um borð og tókst honum að lenda vélinni án teljandi vandræða á veginum.

Samkvæmt upplýsingum frá Isavia barst flugturninum á Reykjavíkurflugvelli neyðarkall frá flugvélinni og fór viðbragðsáætlun í gang. Flugmanninum tókst hins vegar að lenda flugvélinni giftusamlega á veginum.

Lögregla er nú á vettvangi og samkvæmt upplýsingum þaðan er flugmaðurinn ómeiddur. Ástæður þess að flugvélin þurfti að nauðlenda liggja ekki fyrir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×