Lítið meira að sækja 24. janúar 2014 08:27 Ákaflega snúin staða er komin upp á vinnumarkaðnum eftir að félög hátt í helmings Alþýðusambandsfólks felldu nýgerða kjarasamninga. Það er raunveruleg hætta á að sú tilraun til að auka kaupmátt með því að varðveita stöðugleika og koma í veg fyrir verðhækkanir fari út um þúfur. Í samningunum sem gerðir voru fyrir jól fullnýttu fyrirtækin í landinu það svigrúm sem þau höfðu til að hækka laun. Hefðu þau samið um meiri hækkanir hefðu þau þurft að útvega sér meiri tekjur með því að hækka verð á vöru og þjónustu. Félögin sem felldu samningana munu ekki sækja sér neinar frekari launahækkanir sem ekki velta út í verðlagið og éta þannig sjálfar sig upp. Knýi þau fram meiri hækkun munu félögin sem samþykktu samningana að sjálfsögðu ekki sætta sig við minna. Slík niðurstaða myndi hleypa verðbólgunni af stað og allt væri unnið til einskis. Er það virkilega það sem þeir vilja sem sögðu nei við samningunum? Að jafnmörg félög og raun ber vitni skyldu fella samningana má skrifa á tvennt; annars vegar ábyrgðarlausan málflutning sumra verkalýðsleiðtoga og hins vegar verð- og gjaldskrárhækkanir fyrirtækja, ríkisins og sveitarfélaga sem drógu úr trú fólks á því að markmið samninganna myndu halda. Athygli vekur að á "svarta lista" ASÍ yfir fyrirtæki og stofnanir sem neita að draga verðhækkanir til baka er helmingurinn í eigu ríkis og sveitarfélaga. Það er talsvert til í því sem Sigurður Bessason, talsmaður Flóabandalagsins, sagði í fjölmiðlum í gær; að ríkisstjórnin gekk ekki á undan með nógu skýru fordæmi um að draga gjaldskrárhækkanir til baka. Hún hefði átt að grípa til aðgerða mun fyrr til að auka traust almennings á því að hægt yrði að halda verðlagi í skefjum. Framundan eru erfiðar kjarasamningaviðræður við ríkisstarfsmenn. Hið opinbera getur ekki leyft sér að láta þá hafa meiri hækkanir en samið hefur verið um á almenna markaðnum, nema þá að á móti náist skipulagsbreytingar eða hagræðing sem sparar ríkinu peninga. Annars þarf bara að fækka opinberum starfsmönnum enn meira en ella eða þá að hækka skatta. Það er vandséð hvernig á að höggva á hnútinn sem þetta mál er komið í. Ríkisstjórnin gæti hugsanlega gefið meira eftir í skattamálum, til dæmis með að fallast á þá hækkun persónuafsláttarins sem verkalýðshreyfingin krafðist. Það myndi hins vegar útheimta meiri niðurskurð hjá ríkinu ef ekki ætti að stefna markmiðum um hallalausan rekstur ríkissjóðs í hættu - og jafnvægi í ríkisfjármálunum er líka mikilvægt hagsmunamál heimilanna í landinu. Þeir sem nú fara fram með kröfur um launahækkanir sem engin innistæða er fyrir, hvorki hjá fyrirtækjunum í landinu né hinu opinbera, hljóta að átta sig á því að slíkir samningar skila launafólki á endanum nákvæmlega ekki neinu. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Ríkisreknar ofsóknir Sigurður Einarsson Skoðun Hver skipaði bankaráði Landsbankans að kaupa TM? Ásthildur Lóa Þórsdóttir Skoðun Bréf til þjóðarinnar Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir Skoðun Saklausir menn í fangelsi Tinna Brynjólfsdóttir Skoðun Er þetta eðlilegt? Guðrún Árnadóttir,Guðrún Tara Sveinsdóttir,Hekla Kollmar,Þorgerður Jörundsdóttir Skoðun Vikan með Gísla Árný Björg Blandon Skoðun Markvissar aðgerðir munu skila árangri á húsnæðismarkaði Ágúst Bjarni Garðarsson Skoðun Páskarnir - íhugunarhvatning Árni Stefán Árnason Skoðun Tónlist í gleði og sorg Sigurvin Lárus Jónsson Skoðun Foreldrar með börn í vímuefnaneyslu og úrræði Dagbjört Ósk Steindórsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Foreldrar með börn í vímuefnaneyslu og úrræði Dagbjört Ósk Steindórsdóttir skrifar Skoðun Páskarnir - íhugunarhvatning Árni Stefán Árnason skrifar Skoðun Aukinn kraftur með hækkandi sól Bragi Bjarnason skrifar Skoðun Tilbrigðin um enda lífsins Matthildur Björnsdóttir skrifar Skoðun Tónlist í gleði og sorg Sigurvin Lárus Jónsson skrifar Skoðun Eftirliti með snyrtistofum ábótavant Halla Signý Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Markvissar aðgerðir munu skila árangri á húsnæðismarkaði Ágúst Bjarni Garðarsson skrifar Skoðun Bréf til þjóðarinnar Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Einokunarmjólk? Hilmar Vilberg Gylfason skrifar Skoðun Má þjóðin ráða? Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Formaður geðlækna illa áttaður? Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar Skoðun Hver skipaði bankaráði Landsbankans að kaupa TM? Ásthildur Lóa Þórsdóttir skrifar Skoðun Að vera eða vera ekki í samkeppni við sjálfa sig Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Engin námslán fyrir fátækt fólk Gísli Laufeyjarson Höskuldsson skrifar Skoðun Er þetta eðlilegt? Guðrún Árnadóttir,Guðrún Tara Sveinsdóttir,Hekla Kollmar,Þorgerður Jörundsdóttir skrifar Skoðun Stjórnmálin koma okkur öllum við Arnar Freyr Sigurðsson skrifar Skoðun Um tímabær áform ráðherra og ótímabært frumhlaup Viðskiptaráðs Jóna Hlíf Halldórsdóttir skrifar Skoðun Fríar máltíðir grunnskólabarna - merkur samfélagslegur áfangi Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Heilbrigðisráðuneytið er með forystu Halla Signý Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Skaðaminnkun, lækning, hroki og hleypidómar Guðbjörg Sveinsdóttir skrifar Skoðun Fyrirgefðu mér mín kæra Harpa Sævar Helgi Lárusson skrifar Skoðun Vikan með Gísla Árný Björg Blandon skrifar Skoðun Furðulegar verðlækkanir á mörkuðum Baldur Thorlacius skrifar Skoðun Varanlegt vopnahlé og sjálfstæð Palestína Kristrún Frostadóttir skrifar Skoðun Með of mikil völd Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Hvað ef það gýs nær höfuðborgarsvæðinu? Ingvi Gunnarsson,Sigrún Tómsdóttir,Hrefna Hallgrímsdóttir,Daði Hafþórsson skrifar Skoðun Er sniðugt að vera með tilgreinda séreign? Guðný Helga Lárusdóttir skrifar Skoðun Ekki þykjast ekki vita neitt Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Athugasemdir við eignaumsýslu Landsbanka Íslands Þorsteinn Sæmundsson skrifar Skoðun Framsókn stendur með bændum og neytendum Hópur þingmanna Framsóknar skrifar Sjá meira
Er þetta eðlilegt? Guðrún Árnadóttir,Guðrún Tara Sveinsdóttir,Hekla Kollmar,Þorgerður Jörundsdóttir Skoðun
Skoðun Er þetta eðlilegt? Guðrún Árnadóttir,Guðrún Tara Sveinsdóttir,Hekla Kollmar,Þorgerður Jörundsdóttir skrifar
Skoðun Um tímabær áform ráðherra og ótímabært frumhlaup Viðskiptaráðs Jóna Hlíf Halldórsdóttir skrifar
Skoðun Fríar máltíðir grunnskólabarna - merkur samfélagslegur áfangi Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar
Skoðun Hvað ef það gýs nær höfuðborgarsvæðinu? Ingvi Gunnarsson,Sigrún Tómsdóttir,Hrefna Hallgrímsdóttir,Daði Hafþórsson skrifar
Er þetta eðlilegt? Guðrún Árnadóttir,Guðrún Tara Sveinsdóttir,Hekla Kollmar,Þorgerður Jörundsdóttir Skoðun