Lítið bólar á gjaldeyrismálum og ráðherra hefur áhyggjur Þorbjörn Þórðarson skrifar 30. maí 2012 18:49
Efnahags- og viðskiptaráðherra segir það áhyggjuefni hve fá mál hafi komið til dómstóla frá gjaldeyriseftirliti Seðlabankans. Tvö og hálft ár er liðið síðan kynnt var stór rannsókn á hendur mönnum sem grunaðir eru um gjaldeyrisbrot en ekkert bólar á niðurstöðu. Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, beindi fyrirspurn að Steingrími J. Sigfússyni, efnahags- og viðskiptaráðherra, um gang rannsókna vegna brota á gjaldeyrisreglum Seðlabankans, en ekki hefur verið ákært í neinu máli. „Í gjaldeyriseftirliti Seðlabankans (...) hefur ekki verið ákært í neinu máli en í sumum málum var farið mikinn, eins og til dæmis í Aserta-málinu þar sem haldinn var blaðamannafundur án þess að búið væri að yfirheyra þá sem grunaðir voru og lítið ef nokkuð hefur gerst síðan í janúar 2010. Forstöðumaður gjaldeyriseftirlits Seðlabankans veitti þeim aðilum sem voru ákærðir ráðgjöf en vék ekki við rannsókn málsins. Ég vildi því spyrja hæstvitan ráðherra: Er þetta eðlileg stjórnsýsla?," sagði Guðlaugur Þór. Og Steingrímur, sem er ráðherra bankamála, svaraði: „Það er auðvitað mikilvægt líka að mál séu rannsökuð og þeim sé fylgt eftir og ég get tekið undir að það er áhyggjuefni hve fá meint gjaldeyrisbrotamál hafa gengið áfram í gegnum réttarkerfið. Það kann að tengjast því að það voru skipulagsbreytingar hjá viðkomandi aðilum, þ.e. efnahagsbrotadeild ríkislögreglustjóra var sameinuð embætti sérstaks saksóknara, og vonandi er það ávísun á að þessi mál komist á fastari skorður. Ég bind vonir við það." Eins og Guðlaugur Þór nefndi eru tvö og hálft ár liðin frá því þáverandi efnahagsbrotadeild ríkislögreglustjóra og gjaldeyriseftirlit Seðlabankans kynntu stóra rannsókn á félaginu Aserta Ab í Svíþjóð, sem er í eigu tveggja fyrrverandi starfsmanna Straums. Málið var kynnt á blaðamannafundi hinn 29. janúar 2010. Þá voru eignir mannanna sem eiga félagið kyrrsettar. Mennirnir tveir sem eiga félagið hafa nú þurft að sæta því í tvö og hálft ár að vera með réttarstöðu grunaðra hjá sérstökum saksóknara, sem tók við málinu við sameiningu embættanna. Þá felldi Hæstiréttur úr gildi kyrrsetningu á eignum þeirra sl. vetur. Ólafur Þór Hauksson sagði í samtali við fréttastofu að 11 mál væru til rannsóknar sem tengdust á meintum brotum á gjaldeyrishöftum. Unnið væri að því að ljúka þessum málum. Þegar hafa nokkur mál verið felld niður. Ríkissaksóknari, æðsti handhafi ákæruvalds, felldi til dæmis niður mál sem tengdist Heiðari Má Guðjónssyni og taldi að ekki væri ástæða til að aðhafast vegna þeirra ásakana sem gjaldeyriseftirlitið bar á hann.
Mest lesið Safnað fyrir foreldra Bergs Ottós Innlent „Fórnarlambið látið borga brúsann“ Innlent Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Innlent Telja Ríkisútvarpið bullandi hlutdrægt í ESB-málinu Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Íbúar á flæðiskeri staddir eftir samdrátt í umsvifum Icelandair Innlent Trúir ekki öðru en að nýir herrar fjarlægi „níðstöngina“ Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent Enginn þurfi að óttast að vera skilinn frá maka sínum Innlent Fleiri fréttir Umdeild brottfararstöð leidd í lög Fimm úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald Hætta aftur rannsókn á Múlaborgarmálum Íbúar á flæðiskeri staddir eftir samdrátt í umsvifum Icelandair Telja Ríkisútvarpið bullandi hlutdrægt í ESB-málinu Landris og kvikusöfnun heldur áfram Trúir ekki öðru en að nýir herrar fjarlægi „níðstöngina“ Enginn þurfi að óttast að vera skilinn frá maka sínum Safnað fyrir foreldra Bergs Ottós Áfrýjar ekki dómi fyrir brot á Múlaborg Gervigreindin aukið hraða netsvika gríðarlega Góður gangur í fundarhöldum um þinglok Enn tekist á um þingstörfin og gervigreindin eykur hættuna á netglæpum Jóna Árný endurráðin bæjarstjóri „Fórnarlambið látið borga brúsann“ Skoða hvernig brotthvarfi Bandaríkjanna úr hafrannsóknum verður mætt Rúmlega átján þúsund skiluðu ekki framtali „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Rafvarnarvopn kom við sögu þar sem tilkynnandi um brot var handtekinn Vaxtaplanið sé tímaskekkja Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Aðalsteinn hleypur í skarðið „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Vilhjálmur sagði af sér þingmennsku Andmæla fundarboði aðalfundar Sósíalista Konukot og börn í brottfararstöð í brennidepli í kvöldfréttum Séra Guðni Már kveður Ísland Sjá meira