Skoðun

Listnám í Laugarnesið

Ágúst Már Garðarsson skrifar
Ég elska listir og trúi því einlæglega að án þeirra myndi líf okkar vera fátæklegra og sumir myndu jafnvel bara deyja. Nú er ég búinn að hitta Listnema úr LHÍ og kennara nokkrum sinnum á síðustu vikum, skoða húsakynni þeirra sem eru algerlega fyrir neðan allar hellur og hlusta á óskir þeirra. Nú húka þesssir framtíðarlistamenn þjóðarinnar í 5 mismunandi húsnæðum um allan bæ með tilheyrandi flóknum rekstrarkostnaði, og ekki bara það heldur hentar flest húsnæðið mjög illa til námsins og stór hluti er auk þess undirlagður af myglu og á niðurrifsplani.

Þetta getum við ekki horft upp á lengur sem menningarþjóð, því ef það er eitthvað eitt sem kynnir Ísland umfram náttúruna okkar þá er það framlag Íslands til menninga og lista sem er nú þegar allgott, ímyndið ykkur ef þessir nemar fá góðan aðbúnað til að iðka sitt nám og rannsóknir?

Ég var sjálfur við nám í matreiðslu þegar Hótel og Matvælaskólinn í MK var opnaður og sú bylting í námsaðstöðu okkar hefur fleygt okkur svo gríðarlega fram í mínu fagi, það gilda nákvæmlega sömu faglegu reglur um listnám.

Mér þykir einsýnt að nú eigi ríkið og Reykjavíkurborg að leggjast á eitt að koma listnámsgreinunum 5 saman undir eitt þak í Laugarnesinu. Því miður er enginn peningur eyrnamerktur til verkefnisins í fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar en því verður að breyta, því að það er hrein skömm að því. Frumhönnun, þarfagreining og teikningar þurfa að fara að eiga sér stað svo að verkefnið komist af stað og listnemar og kennarar fari að eygja að komast á endastöð. Þessu skal ég berjast fyrir af heilum hug ef ég kemst einhvers staðar að málum í framtíðinni. Sameinumst um stórbrotinn Listaháskóla í Laugarnesinu sem sinnir öllum sviðum og hjálpar til að allir geti unnið saman þvert á sviðin því að það er leiðin til framfara í listinni á tímum þar sem mörk listanna eru alltaf að verða óskýrari og skemmtilegri.

Höfundur er matreiðslumaður Marel, fyrrverandi varaborgarfulltrúi og frambjóðandi Bjartrar Framtíðar í 4. sæti Reykjavík norður.




Skoðun

Skoðun

Saman gegn ríkisofbeldi

Vilhjálmur Yngvi Hjálmarsson,Örlygur Steinar Arnaldsson,Sigurhjörtur Pálmason,Simon Valentin Hirt,Kristbjörg Arna E. Þorvaldsdóttir,Ari Logn,Margrét Rut Eddudóttir skrifar

Sjá meira


×