Innlent

Listi fólksins hélt naumlega meirihluta sínum

Samúel Karl Ólason skrifar
Valgarður Hilmarsson er oddviti Lista fólksins á Blönduósi.
Valgarður Hilmarsson er oddviti Lista fólksins á Blönduósi. Vísir/Pjetur
L - Listi Fólksins hélt meirihluta sínum á Blönduósi naumlega og fékk 51% og fjóra menn. J-Listi umbótasinnaðra Blönduósinga fékk 49% og þrjá menn kjörna.

Valgarður Hilmarsson, oddviti Lista fólksins, líst vel á komandi kjörtímabil. „Okkur líst ágætlega á þetta. Við fórum fram með þetta í huga og erum tilbúin í að takast á við kjörtímabilið.“

Valgarður kemur inn í þetta kjörtímabil eftir að hafa verið á lista 2006-10. Hann segir helsta verkefni komandi kjörtímabils vera efling atvinnulífsins á Blönduósi.

„Það er númer eitt, tvö og þrjú, svo ætlum við að standa vörð um velferðarkerfið okkar,“ segir Valgarður.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×