Menning

Listakonur spretta úr spori

Friðrika Benónýsdóttir skrifar
Aksjónistar: Jóhanna V. Þórhallsdóttir, Halla Margrét Jóhannesdóttir, Jónína Leósdóttir og Ólöf Ingólfsdóttir skemmta gestum í Anarkíu í dag.
Aksjónistar: Jóhanna V. Þórhallsdóttir, Halla Margrét Jóhannesdóttir, Jónína Leósdóttir og Ólöf Ingólfsdóttir skemmta gestum í Anarkíu í dag.
„Við Ólöf höfum þekkst lengi og unnið saman, enda báðar fjöllistakonur og við fengum hinar tvær með okkur í að búa til þessa dagskrá,“ segir Jóhanna V. Þórhallsdóttir söngkona, ein fjögurra kvenna sem bjóða til skemmtunar í Anarkíu í Kópavogi í dag.

Hinar eru Halla Margrét Jóhannesdóttir, Jónína Leósdóttir og Ólöf Ingólfsdóttir. Allar hafa þær stöllur nýverið gefið út bækur eða geisladiska og munu lesa og syngja brot af efni þeirra. „Þetta er frumraun okkar saman, en vonandi gengur þetta vel og við höldum ótrauðar áfram,“ segir Jóhanna.

Allar eru þær á besta aldri og Jóhanna segir þær vera eldri aksjónista í listinni. „Fólk er bara að finna hvað það er gaman að vera á þessum aldri og engin ástæða til að draga sig í hlé,“ segir hún. „Enda erum við ekki þannig týpur að við læðumst með veggjum. Við viljum miklu frekar spretta úr spori.“

Halla Margrét á útgáfufyrirtækið Nikku sem gaf nýverið út ljóðabók hennar, 48, og bók Ólafar, Dagar og nætur í Buenos Aires. Forlagið gaf út bók Jónínu, Bara ef… og útgáfufyrirtækið Valgardi gaf út geisladisk Jóhönnu, Söngvar á alvörutímum.

Þær stöllur verða í Anarkíu, Hamraborg 3, í dag klukkan 16 og lesa og syngja, en léttar veitingar verða á boðstólunum. Í Anarkíu er einnig sýning á verkum Helgu Ástvaldsdóttur og Jónasar Braga Jónassonar. Ókeypis er inn, bæði á sýninguna og kynninguna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×