Erlent

Línur Trumps farnar að skýrast

Sæunn Gísladóttir skrifar
Trump ásamt Reince Priebus og Mike Pence, verðandi varaforseta.
Trump ásamt Reince Priebus og Mike Pence, verðandi varaforseta. vísir/afp
Donald Trump, nýkjörinn forseti Bandaríkjanna, er byrjaður að velja í æðstu embætti í Hvíta húsinu.

Trump hefur tilkynnt að Reince Priebus, formaður landsnefndar Repúblikanaflokksins, muni gegna starfi starfsmannastjóra Hvíta hússins. Hann hefur einnig skipað Stephan Bannon yfirmann stefnumótunar ríkisstjórnarinnar að því er kemur fram í yfirlýsingu. Báðir mennirnir gegndu veigamiklu hlutverki í kosningaherferð Trumps.

Priebus var kjörinn formaður landsnefndar Repúblikanaflokksins árið 2011 og hefur skipan hans hlotið nokkuð lof fjölmiðla vestanhafs.

Bannon, sem er kaupsýslumaður og fjölmiðlamógúll, hafði yfirumsjón með kosningaherferð Trumps. Hann rekur vefmiðilinn Breitbart News sem er þekktur fyrir þjóð­ernis­hyggju, kynþáttahyggju og samsæriskenningar í umfjöllun sinni. Fjölmiðlar gagnrýndu í gær skipan Bannons vegna þessa.

New York Times hefur tekið saman lista yfir mögulega menn í fleiri embætti sem Trump mun skipa í. Meðal annars er því spáð að Newt Gingrich, fyrrverandi forseti bandaríska þingsins, gæti orðið utanríkisráðherra, og að Chris Christie, fyrrverandi ríkisstjóri New Jersey og stuðningsmaður Trumps, gæti orðið viðskiptaráðherra.

Evrópskir stjórnmálamenn eru nú farnir að láta í ljósi skoðanir sínar á Trump. Utanríkisráðherrar innan Evrópusambandsins segjast eiga von á sterkri samvinnu við Bandaríkin eftir að hafa fundað um kjör Trumps. BBC greinir frá því að ráðherrarnir hafi komið saman á sunnudagskvöld og að þeir hafi rætt óformlega um Trump. Þeir segjast þó þurfa að vita meira um hverjar áætlanir Trumps séu.

Á meðan á kosningabaráttu Trumps stóð gaf hann í skyn að Bandaríkin myndu ekki sjálfkrafa koma öðru NATO-ríki til bjargar ef það yrði fyrir árás.

Yfirlýsingar utanríkisráðherranna stangast verulega á við skoðun Jean-Claude Juncker, forseta framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins. Hann varaði við því á föstudag að kjör Trumps gæti komið tengslum milli Evrópu og Bandaríkjanna í uppnám.

Nigel Farage, fyrrverandi formaður UKIP, fundaði með Donald Trump um helgina. Hann tísti í kjölfarið að það hefði verið mikill heiður að fá að eyða tíma með Trump og að hann væri viss um að hann yrði góður forseti.

Fundurinn var litinn hornauga af ráðamönnum í Bretlandi þar sem Farage hitti Trump á undan for­sætis­ráðherra Bretlands og öðrum hátt settum stjórnmálamönnum. Farage bauðst síðan til að kynna breska stjórnmálamenn fyrir Trump en Theresa May forsætisráðherra hefur afþakkað.

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×