Fótbolti

Lineker: Verður óglatt að horfa upp á þessa skömm við fótboltann sem FIFA er

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Gary Lineker, fyrrverandi framherji enska landsliðsins í fótbolta sem er einn vinsælasti sjónvarpsmaður Bretlands í dag, vill að forsetakosningum FIFA verði frestað.

Hann vill einnig að aftur verði kosið um hvaða þjóð haldi HM 2018, sem fram á að fara í Rússlandi, og HM 2022, sem stendur til að halda í Katar.

Eins og fjallað hefur verið um í dag voru nokkrir háttsettir embættismenn innan Alþjóðaknattspyrnusambandsins handteknir af svissnesku lögreglunni grunaðir um peningaþvætti og fleira til.

„Það hafa verið dæmi um þetta áður þannig þetta sýnir bara hversu djúpt þetta liggur innan sambandsins,“ segir Lineker í viðtali við BBC.

„FIFA þarf nú að verða alveg gegnsætt og í raun bara byrja aftur. Annars verða stóru knattspyrnusamböndin að sniðganga FIFA. Það er kominn tími til að gera hlutina öðruvísi.“

Walter De Gregorio, fjölmiðlafulltrúi FIFA, segir líklegt að kosningarnar til forseta sambandsins fari fram á föstudaginn þrátt fyrir aðgerðir svissnesku lögreglunnar síðustu nótt.

„Það kæmi mér ekkert á óvart ef kosningin fer fram og Blatter verður áfram forseti eins og alltaf. Hann hefur nóg af fólki á sínu bandi sem sýnir hvað gerist þegar þú dælir peningum til ákveðinna svæða í heiminum,“ segir Lineker.

„Þetta lítur alveg hræðilega út. Þetta er yndisleg íþrótt og því verður manni óglatt að horfa upp á þessa skömm við fótboltann sem FIFA er,“ segir Gary Lineker.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×