Íslenski boltinn

Lilleström ætlar að bjóða aftur í Árna

Árni fagnar með Blikum.
Árni fagnar með Blikum. vísir/daníel
Rúnar Kristinsson, þjálfari Lilleström, hefur mikinn áhuga á Blikanum Árna Vilhjálmssyni og ætlar sér að fá hann til Noregs.

Samkvæmt heimildum íþróttadeildar þá hafa Blikar þegar hafnað einu tilboði frá Lilleström í Árna. Norska liðið hefur þó ekki gefist upp og ætlar að gera annað tilboð í framherjann.

Árni var til skoðunar hjá hollenska félaginu Groningen á dögunum en hollenska félagið hefur ekki farið lengra með áhuga sinn á leikmanninum.

Norðmennirnir hafa aftur á móti ekki gefist upp og því óljóst hvort Árni spili með Blikum í Pepsi-deildinni næsta sumar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×