Innlent

Lilja um stjórnar­myndunar­við­ræður: Teljum þriggja flokka stjórn betri

Birgir Olgeirsson skrifar
Lilja Alfreðsdóttir
Lilja Alfreðsdóttir Vísir/Eyþór
„Það sem er að gerast akkúrat núna er að allir flokkar eru að tala saman,“ segir Lilja Alfreðsdóttir, starfandi utanríkisráðherra og þingmaður Framsóknarflokksins, þegar Vísir heyrði í henni um mögulega þátttöku Framsóknar í stjórnarmyndunarviðræðum.

Flokkurinn er sá eini á þingi sem ekki hefur tekið þátt í formlegum stjórnarmyndunarviðræðum nú eftir kosningar en bæði forsvarsmenn flokksins hafa lýst því yfir að Framsóknarflokkurinn útiloki ekki neitt og séu tilbúinn að axla ábyrgð til að koma á starfhæfri stjórn.

„Það eru óvenjulegar aðstæður uppi og okkur ber lýðræðisleg skylda að kanna hvaða leiðir eru færar í þessu því verkefnið sem við fáum er að mynda starfhæfa og sterka stjórn og í þeim efnum er verið að velta upp hinu og þessu, hvað gæti gengið, hverjir gætu unnið saman, hvaða málefnalegi ágreiningur er og svona,“ segir Lilja.

Einhverjir hafa lýst því yfir að mögulega gæti Framsóknarflokkurinn tekið sæti Viðreisnar í fjölflokkastjórninni svokölluðu, en viðræður Vinstri grænna, Bjartrar framtíðar, Pírata, Samfylkingarinnar og Viðreisnar voru stöðvaðar í gær því of langt var á milli Viðreisnar og Vinstri grænna í skattamálum og sjávarútvegsmálum.

„Við getum vel hugsað okkur að vinna með Vinstri grænum og flokkunum þarna en okkur hefur fundist það að fara í fimm flokka stjórn sé ekki eins sterk stjórn og að fara í þriggja flokka stjórn. Það er það sem við höfum verið að líta til. Við höfum ekki verið að útiloka neitt. Það voru þessir fimm flokkar sem byrjuðu að tala saman, það tók ekki allt of langan tíma svo komust menn að þeirri niðurstöðu að það gengi ekki upp. Það var svona í raun og veru okkar áhyggjur og þess vegna vorum við skeptísk á það, þess vegna teljum við þriggja flokka stjórn betri,“ segir Lilja.

Eru þá viðræður Vinstri grænna, Framsóknarflokksins og Sjálfstæðisflokksins á næstunni?

„Það er bara full snemmt að segja til um það. En allir flokkarnir eru að tala saman,“ segir Lilja.

Hún segir það vera kröfu kjósenda að allir flokkarnir vinni betur saman og leggist yfir það hver staðan og reyna að ná saman.

„Framsóknarflokkurinn er eini flokkurinn sem hefur ekki tekið þátt í viðræðum og ég held að það sé svolítið mikilvægt að nálgast þetta verkefni með öðrum hætti og nýjum hugmyndum eða lausnum, hugsa út fyrir boxið. Hver er lausnin varðandi skattamálin? Hver er lausnin varðandi sjávarútveginn? Hvernig náum við saman?“


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×