Innlent

Lilja Dögg: „Ég er að skoða þetta með varaformanninn og það mun duga í bili“

Jóhann K. Jóhannsson skrifar
Lilja Dögg Alfreðsdóttir utanríkisráðherra skoðar nú alvarlega hvort hún muni bjóða sig fram í embætti varaformanns Framsóknarflokksins á flokksþingi sem fram fer um helgina. Hún er ekki viss um að mögulegt formannsframboð sitt myndi slá á þá spennu sem ríkir innan flokksins.

Segist hún ekki hafa orðið vör við það baktjaldamakk sem Vigdís Hauksdóttir og Gunnar Bragi Sveinsson hafa lýst í fjölmiðlum síðustu daga. Engum dylst þó sú ólga sem er innan við flokksins og hafa verið væringar um það innan flokksins um það hvort að mögulegt formannsframboð Lilju myndi slá á þá ólgu.

Þú virðist hafa stuðning úr báðum fylkingum, bæði Sigurðar Inga Jóhannsonar og Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar. Myndi það leysa ákveðna spennu innan flokksins að þú einfaldlega tækir að þér formannsembættið?

„Ég veit ekki hvort að það geri það. Ég er auðvitað þakklát fyrir þann stuðning sem ég virðist hafa innan flokksins en nú er ég að kanna minn stuðning er varðar varaformannshlutverkið. Ég læt það duga í bili,“ segir Lilja.

Aðspurð að því hvort að hún myndi neita því að gefa kost á sér í formannsembættið kom hik á Lilju. Svaraði hún því neitandi áður en hún ítrekaði að hún væri að skoða framboð til varaformanns en hún gerir ráð fyrir því að kynna ákvörðun sína síðar í vikunni.

„Ég er að tala við mína stuðningsmenn og athuga hvernig þetta lítur allt út. Útlitið er þokkalega gott ef ég á að segja alveg eins og er en ég er enn að fara yfir kosti og galla þess að taka þettta skref,“ segir Lilja um framboð til varaformannsins. 

Viðtalið við Lilju í 1910 má sjá hér að ofan en styttri útgáfu þess má sjá hér að neðan.


Tengdar fréttir

Gunnar segir grafið undan formanninum

Gunnar Bragi Sveinsson styður Sigmund Davíð og Lilju Alfreðsdóttur til að leiða flokkinn í komandi kosningabaráttu. Segir hann varaformann og ritara flokksins reyna að grafa undan formanni og augljósar klofningslínur hafa myndast.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×