Formúla 1

Líkurnar ekki með Lewis Hamilton í titilbaráttunni

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Lewis Hamilton veit að hann á erfiða keppni framundan um helgina.
Lewis Hamilton veit að hann á erfiða keppni framundan um helgina. Vísir/Getty
Lewis Hamilton segir að hann standi andspænis „afar slökum líkum“ í kappakstri helgarinnar þar sem úrslit heimsmeistarakeppni ökumanna munu ráðast.

Hamilton hins vegar neitar að gefast upp í baráttunni við liðsfélaga sinn, Nico Rosberg sem leiðir heimsmeistarakeppnina með 12 stigum þegar ein keppni er eftir á tímabilinu.

Hamilton þarf því að yfirstíga forskot Rosberg í einu keppninni sem er eftir á tímabilinu. Rosberg verður að enda fjórði eða neðar til að opna fyrir möguleika Hamilton að verða heimsmeistari ökumanna í fjórða sinn á ferlinum.

„Að vinna loksins í Brasilíu var ógleymanlegt augnablik sem ég var búinn að bíða lengi eftir. Mér líður mjög vel og finnst ég í afar góðu jafnvægi í akstrinum. Enda bíllinn okkar afar góður frá því frábæra fólki sem vinnur í verksmiðjum okkar,“ sagði Hamilton.

„Ég mun verða stoltur af því sem ég hef áorkað svo lengi sem ég er viss um að ég hef gefið allt sem ég á í keppnina. Sama hvað gerist er ég stoltur af öllum sem hafa komið að liðinu og verið hluti af þeim árangri sem það hefur náð undanfarin ár,“ sagði Hamilton.

Lokakeppni tímabilsins fer fram um komandi helgi. Bein útsending frá tímatökunni hefst klukkan 12:50 á laugardag á Stöð 2 Sport 3. Bein útsending frá keppninni hefst svo klukkan 12:30 á sunnudag á Stöð 2 Sport.


Tengdar fréttir

Bílskúrinn: Baslið í Brasilíu

Lewis Hamilton á Mercedes kom fyrstur í mark í maraþon keppni í Brasilíu. Kappaksturinn stóð yfir í rúmar þrjár klukkustundir. Miklar rigningar töfðu keppnina talsvert.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×