Lífið

Líklegt að Eurovision lengist um klukkustund

Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar
Måns Zelmerlöv verður kynnir á keppninni í ár.
Måns Zelmerlöv verður kynnir á keppninni í ár. Vísir/EPA
Eurovision-keppnin í ár mun standa í um fimm tíma ef marka má kynni Breta Graham Norton. Þetta er afleiðingin af nýju kosningakerfi sem aðgreinir atkvæðagreiðslu dómnefndar og símakosningu almennings með skýrum hætti. Þetta kemur fram á DailyMail.

Söngvakeppnin var 239 mínútur á síðasta ári sem eru rétt tæplega fjórir klukkutímar. Hún átti aðeins að standa yfir í þrjá og hálfan tíma en varð lengri. Graham Norton hefur verið kynnir fyrir Breta í sjö ár, hann segist elska Eurovision en að hans mati ætti að reyna að stefna að því að keppnin væri aðeins tveir og hálfur tími.

„Ég held að nýja kosningakerfið sé góð hugmynd. Það eina er að það gerir keppnina lengri og mér finnst ekki að hún ætti að verða lengri.“ Norton segist þó eiga aðeins erfitt með að skilja nýja fyrirkomulagið. „Ég held ég skilji það. Þeir hafa aðskilið atkvæði úr símakosningu frá atkvæðum dómnefndar. Bestu áhrifin eru þau að keppnin verður meira spennandi því að þú munt ekki vita hver vinnur fyrr en í lokin.“  


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×