Lífið

Líklega töluð tíu til tólf tungumál

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
Nemendur úr Fjölbraut í Breiðholti verða gestgjafar á tungumálastefnumótinu.
Nemendur úr Fjölbraut í Breiðholti verða gestgjafar á tungumálastefnumótinu.
Stefnumót tungumála verður haldið í Borgarbókasafninu í Gerðubergi, menningarhúsi í Breiðholti, í dag klukkan 16.30, nánar tiltekið í kaffihúsinu Cocina Rodriguez sem nýlega var opnað þar á efri hæðinni, á sama stað og fyrri veitingastaðir hafa verið.



Gestgjafar að þessu sinni eru nemendur úr Fjölbrautaskólanum í Breiðholti sem ætla að veita gestum innsýn í tungumál og menningu sem þeir tengjast utan Íslands. Aðrir áhugasamir geta einnig slegist í hópinn og kynnt sitt móðurmál, að sögn Kristínar R. Vilhjálmsdóttur, verkefnastjóra fjölmenningar á vegum safnsins.

„Café Lingua er verkefni sem hefur fengið vængi og í þetta sinn erum við að fá Fjölbrautaskólann í Breiðholti til samstarfs, það er mjög spennandi,“ segir hún og heldur áfram. „Sextán nemendur munu taka þátt og líklega verða töluð tíu til tólf tungumál því í hópnum eru nokkrir Nepalar. Þeir búa nefnilega æði margir í Breiðholtinu.

Svo eru íslenskir krakkar sem hafa búið lengi erlendis, til dæmis tvær stúlkur sem áttu heima í Danmörku þegar þær voru litlar. Við gleymum því stundum að mörg íslensk ungmenni eiga þann fjársjóð að kunna annað tungumál en íslenskuna,“ segir Kristín og tekur fram að nemendurnir hafi verið mjög áhugasamir um undirbúninginn og duglegir að fræða hver annan um lífið í sínu ættlandi. 



Hingað til hafa þátttakendur í Café Lingua ýmist verið almennir borgarar eða háskólastúdentar, bæði erlendir og íslenskir, að sögn Kristínar sem tekur fram að allir séu velkomnir, bæði til að hlusta og miðla tungumálum.



Greinin birtist fyrst í Fréttablaðinu 16. mars 2017






Fleiri fréttir

Sjá meira


×