Fótbolti

Líkja Sepp Blatter við bæði Jesús og Nelson Mandela

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Sepp Blatter, forseti FIFA.
Sepp Blatter, forseti FIFA. Vísir/AFP
Sepp Blatter, forseti FIFA, ætti að geta treyst á nokkur atkvæði frá löndum Norður- og Mið-Ameríku í komandi forsetakosningunum Alþjóðaknattspyrnusambandsins.

Þessum umdeilda forseta FIFA var líkt við Jesús, Nelson Mandela og Winston Churchill í yfirlýsingu frá þingi Concafaf-sambandins en þar ætla tíu þjóðir pottþétt a ðkjósa Blatter.

Osiris Guzman, forset dómíníska sambandsins, var svo ánægður með Svisslendinginn að hann líkti forseta FIFA við Móses, Abraham Lincoln og Martin Luther King.

Forseti knattspyrnusambands Trínídad og Tóbago talaði líka um Blatter sem faðir fótboltans en Sepp Blatter er 79 ára gamall og hefur verið forseti FIFA frá 1998.

Önnur lönd sem gáfu út hreina og klára stuðningsyfirlýsingu til Blatter á þinginu voru Jamaíka, Haíti, Turks- og Caicoseyjar, Kúba, Panama, Sankti Vinsent og Grenadíneyjar og Púertó Ríkó.

Sepp Blatter er að sækjast eftir sínu fimmta kjörtímabili en hann hefur verið gagnrýndur fyrir spillingu og einræðistilburði í sinni forsetatíð.

Forsetakosningarnar fara fram 30.maí næstkomandi en þar eru einnig í framboði Luis Figo, fyrrum besti fótboltamaður heims, Michael van Praag, forseti hollenska sambandsins og jórdanski prinsinn Ali Bin Al Hussein.


Tengdar fréttir

HM 2019 í Frakklandi

Lokakeppni heimsmeistarmóts kvenna í knattspyrnu fer fram í Frakklandi árið 2019.

Blatter þorir ekki í kappræður fyrir forsetakjör FIFA

Sepp Blatter, forseti FIFA, var ekki tilbúinn að taka þátt í kappræðum fyrir forsetakjör FIFA en þrír aðilar keppa við hann um embættið í komandi forsetakosningum. BBC og Sky ætluðu að standa sameiginlega að kappræðunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×