Innlent

Líkir kosningaloforðum ríkistjórnarflokkanna við kjötloku án kjöts

Erna Agnes Sigurgeirsdóttir skrifar
Logi Már Einarsson flytur ræðu sína
Logi Már Einarsson flytur ræðu sína Vísir/Ernir

„Ef við berum saman kosningaloforð stjórnarflokkanna og stjórnarsáttmálann birtist merkilegt ósamræmi: Stórfelld uppbygging heilbrigðis- og menntakerfisins, viðamiklar kerfisbreytingar, þjóðaratkvæðargreiðsla um ESB viðræður, breytingar á stjórnarskrá eru allt mál sem virðast að finna sér nýjan og óvæntan farveg í stjórnarsamstarfinu. Flokkarnir lofuðu þessu fyrir kosningar en slík fyrirheit eru ekki í sáttmálanum,“ sagði Logi Einarsson, formaður Samfylkingarinnar, í ræðu sinni á Alþingi.



Þar fara nú fram umræður um stefnuræðu forsætisráðherra en umræðurnar má sjá í beinni útsendingu hér.

Logi líkti þessu við vörusvikum í matvælaframleiðslu. „Við þekkjum nýleg dæmi úr matvælaframleiðslu, þar sem kjötlokur voru án kjöts og brúnegg, með vistvænum stimpli, voru lítið annað en útlitið. Það kölluðu menn vörusvik og vörunum var skilað. Því miður er ekki hægt að skila atkvæði.“



Áfram vegið að velferðinni

Logi ræddi meðal annars um að það vantaði tillögur um hvernig bæta mætti menntamál sem og húsnæðismál en einnig kom fram gagnrýni á skattastefnu núverandi ríkisstjórnar sem þingmanni finnst svipa mikið til þeirrar stefnu sem var við lýði hjá stjórn Framsóknar og Sjálfstæðisflokksins. Þar hafi verið að verki hægri sinnuð skatta- og veflerðapólitík.



„Allt bendir til þess að ný ríkisstjórn muni feta sömu slóð.  Áfram verði vegið að velferðinni. Ríkisstjórnin gefur ekki skýr fyrirheit um hvernig á að takast á við vanda þúsunda barna sem búa við skort og fátækt, húsnæðisvanda ungs fólks eða aukinni misskiptingu í samfélaginu. Við það verður ekki unað.“



Undirtónn ræðunnar voru áhyggjur þingmannsins á miskiptingu valdsins í landinu. Logi leggur þó jafnfram áherslu á að þingið ætti að geta unnið að því sameiningu að vinna að bættu samfélagi og leggur hann áherslu á að huga þurfi sérstaklega að þremur grunnstoðum samfélagsins; Velferðinni, skipulögðum vinnumarkaði og ábyrgri efnahagsstjórn.



„Þótt við jafnaðarmenn séum tímabundið agnarlítill þingflokkur, munum við berjast áfram fyrir hugsjónum okkar: Fyrir almannahagsmunum,  gegn sérhagsmunum og af alefli gegn því að lýðræðið láti í minni pokann fyrir auðræðinu.“ segir Logi og steig úr ræðustóli.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×