Lífið

Líkindin með þessum lögum eru sláandi

Stefán Árni Pálsson skrifar
Það þekkja allir þá umræðu um hvort þetta lag eða hitt sé stolið. Mörg heimsfræg lög eru verulega keimlík og hefur verið tekið saman nokkur góð dæmi í myndbandi á YouTube-síðunni Quarts.

Þar má heyra í raun sömu laglínu í ótal mörgum lögum, sem margir kannast við. Líkindin eru í raun með ólíkindum.

Myndbandið kom inn á myndbandaveituna síðasta sumar en er nú eitt vinsælasta myndbandið á Reddit þar sem fjörug umræða á sér stað. Hér að neðan má sjá afraksturinn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×