Innlent

Líkfundur í Laxárdal: Kannað hvort Frakkans hafi verið saknað í heimalandinu

Birgir Olgeirsson skrifar
Frá Höfn í Hornafirði en lögreglan á Suðurlandi fer með rannsóknina á líkfundinum í Laxárdal.
Frá Höfn í Hornafirði en lögreglan á Suðurlandi fer með rannsóknina á líkfundinum í Laxárdal. Vísir/Pjetur
Banamein hins nítján ára gamla Florian Maurice François Cendre, frá Frakklandi, liggur ekki enn fyrir. Göngufólk fann lík hans við Sauðdrápsgil í Laxárdal þriðjudaginn 18. ágúst síðastliðinn en Laxárdalur er nærri Höfn í Hornafirði. Lögreglan á Suðurlandi fer með rannsókn málsins en talið er að hann hafi komið hingað til lands í október í fyrra. Þegar tilkynnt var um líkfundinn var talið að hann hefði látist fyrir nokkrum mánuðum.

Þorgrímur Óli Sigurðsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Suðurlandi, vildi ekki staðfesta í samtali við Vísi að Florian hafi komið til landsins í október síðastliðnum.

„Núna erum við að fara yfir það allt saman hvenær hann nákvæmlega kom og hverra erindi hann var,“ segir Þorgrímur en lögreglan á enn eftir að fá niðurstöðu úr krufningu.

Aðstandendum tilkynnt um fundinn

Spurður hvort Florians hafi verið saknað í Frakklandi segir Þorgrímur Óli lögregluna vera að kanna það en fjölskyldu Florians hefur verið tilkynnt að hann sé fundinn.

Kennslanefnd ríkislögreglustjóra hafði unnið að því í rúmar tvær vikur að bera kennsl á líkið en hún vinnur eftir leiðbeiningum frá alþjóðalögreglunni Interpol. Tilkynnt var um niðurstöðu nefndarinnar í gær en til að hún sé marktæk þarf eitt að þremur atriðum að vera til staðar: DNA-lífsýni, tannfræðirannsókn eða fingraför. Þá er einnig talið gott að geta stutt niðurstöðuna með öðrum atriðum líkt og húðflúri, örum, skartgripum, sérkennum eða fatnaði. Nefndina skipa tveir rannsóknarlögreglumenn, réttarlæknir og tannlæknir.

Tennurnar ráða oftast mestu

„Þeir þurfa að hafa eitthvað eitt af þessum þremur atriðum til að niðurstaðan sé marktæk og þar á meðal eru tennur,“ segir Þorgrímur Óli um störf kennslanefndarinnar. „Þær ráða nú oft mestu, það eru oft til lýsingar frá tannlæknum og annað. Yfirleitt þegar menn týnast á Íslandi þá eru svona upplýsingar skráðar niður hjá hvaða tannlækni viðkomandi hefur verið.“

Lögreglan biðlaði til almennings að veita upplýsingar sem gætu hjálpað til við rannsókn málsins en Þorgrímur segir slíkar upplýsingar hafa komið lögreglu á slóð Florians. Lýsing á útlit og klæðnaði Florians passaði við mann sem hafði sést hér á landi. „Síðan beittum við útilokunarreglunni og það til þessa.“


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×