Innlent

Líkamsárás í Vestmannaeyjum: Lögreglan vildi meta geðheilbrigði mannsins

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Vestmannaeyjar.
Vestmannaeyjar. Vísir/Pjetur
Hæstiréttur hefur staðfest úrskurð Héraðsdóms Suðurlands þess efnis að ekki verði kallaður til dómkvaddur matsmaður til þess að framkvæma mat á manni sem meðal annars er grunaður er um alvarlega líkamsárás og kynferðisbrot gegn konu í Vestmannaeyjum aðfaranótt 17. september síðastliðinn.  

Lögreglustjórinn í Eyjum lagði fram kröfu þess efnis að lagt yrði mat á persónulegar aðstæður mannsins, hegðun hans og fyrri brot, þroska hans og heilbrigðisástand og þá sérstaklega geðheilbrigði. Maðurinn mótmælti kröfunni.

Kröfu lögreglustjórans er hafnað á þeim forsendum að ekki komi skýrt fram í matsbeiðninni „hvað eigi að meta og hvað aðili hyggist sanna með mati. Kemur ekki neitt fram í matsbeiðni um hvaða þörf er á því að hið umbeðna mat verði framkvæmt og þá þykir ekki nægilega skýrt hvað meta skuli,“ segir í úrskurði héraðsdóms.

Árásin vakti mikinn óhug enda voru lýsingar í greinargerð lögreglu ófagrar. Í greinargerðinni kemur meðal annars fram að konan hafi verið illa útleikin þegar komið var að henni á sjötta tímanum á laugardagsmorgun.

Vitni lýsti því þannig að hún hafi verið afmynduð í andliti, nakin og blóðug á kynfærum. Voru áverkar hennar afar miklir og var konan köld og í annarlegu ástandi þegar hún fannst, óróleg og frásögn hennar verið óljós.

Maðurinn sat í gæsluvarðhaldi til 28. september en þá hafnaði héraðsdómur kröfu lögreglunnar um áframhaldandi gæsluvarðhald á grundvelli almannahagsmuna. Þann úrskurð staðfesti Hæstiréttur nokkrum dögum síðar.


Tengdar fréttir

Konan sem varð fyrir árásinni í áfalli, segir fjölskyldan

Konan sem flutt var með sjúkraflugi frá Vestmannaeyjum um helgina eftir grófa líkamsárás er sögð í miklu andlegu áfalli og eiga erfitt með að tjá sig um atburðinn. Hæstiréttur dæmdi í gær 23 ára karlmann í gæsluvarðhald til laugardags.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×