Innlent

Líkamsárás í Borgartúni í nótt

vísir/hari
Rúmlega tvítugur maður var handtekinn við Cabin hótel í Borgartúni í nótt eftir að hann réðst á erlendan ferðamann. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu veitti árásarmaðurinn mikla mótspyrnu við handtöku. Hann var með fíkniefni í fórum sínum og er nú vistaður í fangageymslu. Ferðamaðurinn fór á slysadeild til að fá áverkavottorð og ætlar hann kæra manninn í dag.

Að öðru leyti var nóttin róleg hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Eitthvað var um ölvunar- og vímuefnakstur og slagsmál í miðbænum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×