Innlent

Líkaði ekki að grænlenskir skipverjar færu huldu höfði á Norðfirði og bauð þeim í mat

Sveinn Arnarsson skrifar
Áhöfn Polar Amaroq var ánægð með móttökurnar þegar hún kom til Norðfjarðar.
Áhöfn Polar Amaroq var ánægð með móttökurnar þegar hún kom til Norðfjarðar. mynd/halldór Jónasson
Eigandi Hótels Hildibrand í Neskaupstað bauð áhöfn grænlenska togarans Polar Amaroq til veislu þegar þeir komu til hafnar í Neskaupstað til löndunar. Eru skipverjar fastagestir á Hótel Hildibrand þegar þeir eru í landi í Neskaupstað.

„Þeir hafa alltaf komið til okkar en þegar þeir komu í land hingað um mánaðamótin voru þeir mjög til baka og fóru eiginlega huldu höfði í bænum eða héldu sig í skipinu,“ segir vertinn Hákon Guðröðarson

„Með þessu vildum við bjóða þá velkomna til okkar og undirstrika þann hlýhug sem við berum til þeirra. Þeir voru mjög ánægðir með matinn og þökkuðu fyrir sig með handabandi áður en þeir gengu aftur til vinnu.“

Skipið Polar Amaroq er grænlenskt fjölveiðiskip og er við leit að loðnu hér á landi ásamt vísindamönnum Hafrannsóknastofnunar. Gert er ráð fyrir að skipið komi næst í land á Siglufirði með nokkuð mikið af loðnu.

Hákon Guðröðarson
Halldór Jónasson, einn skipstjórinn á Polar Amaroq, segir áhöfnina auðvitað hafa verið miður sín þegar fréttir bárust af máli Birnu Brjánsdóttur. Vonaði Halldór þó að það atvik myndi ekki hafa afleiðingar fyrir aðra Grænlendinga.

„Við vorum auðvitað allir slegnir og þetta tekur mjög á. Við hins vegar höldum okkar striki. Okkar skip, Polar Amaroq, landar oft og iðulega hér á Íslandi og þetta eru frábærir strákar,“ segir Halldór.

Hákon vert á Hótel Hildibrand segir mikilvægt fyrir Íslendinga að taka vel á móti Grænlendingum. Það að bjóða þeim í mat hafi bara verið eðlilegur hluti af því að vera vinur vina sinna. Hann vildi sem minnst gera úr þessu góðverki.

„Við kannski gerum okkur ekki grein fyrir því dagsdaglega hvað Grænlendingar hugsa hlýtt til okkar og bera mikla virðingu fyrir okkur Íslendingum. Því ættum við auðvitað að sýna þeim sömu virðingu til baka,“ segir Hákon.

„Þeir verða að fá þá tilfinningu að þeir séu enn velkomnir hér á landi.“

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×