Erlent

Lík þýska mannsins fannst þornað upp um borð í draugaskipinu

Atli ísleifsson skrifar
Bajorat hafði síðast verið í samskiptum við aðra við Mallorca í Miðjarðarhafi árið 2009.
Bajorat hafði síðast verið í samskiptum við aðra við Mallorca í Miðjarðarhafi árið 2009. Myndir/Lögreglan í Barobo
Lögregla í Barobo á Filippseyjum fann á föstudaginn snekkju sem ekkert hafði spurst til í sjö ár. Um borð fannst lík þýska ævintýramannsins Manfred Fritz Bajorat þornað upp og vel varðveitt.

Filippseysk yfirvöld segja að snekkjan hafi rekið á hafi úti allt frá árinu 2009.

Huffington Post greinir frá því að tveir sjómenn hafi fundið bátinn á reki fyrir utan strendur Barobo, en snekkjan er fjörutíu feta og gengur undir nafninu „Sayo“.

Mastrið var brotið og talsverður sjór var inni í stýrishúsinu, en við borðið fannst svo lík Bajorat.

Skjöl um borð í bátnum gerðu það að verkum að lögregla gat borið kennsl á Bojorat sem hafði verið saknað um árabil.

Bajorat hafði síðast verið í samskiptum við aðra við Mallorca í Miðjarðarhafi árið 2009.

Lögregla á Filippseyjum telur ekki að andlátið hafi borið að með saknæmum hætti heldur borið skyndilega að og hafi hann mögulega fengið hjartaáfall.

Talið er að lík mannsins hafi varðveist vegna þurra hafsvinda, mikils hita og saltmagns í loftinu á hafi úti.

FOUND DEAD PERSON-About 4:00 in the afternoon of February 26, 2016, personnel of Barobo PS received information from...

Posted by Barobo Police Station on Friday, 26 February 2016

Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×