Erlent

Lík fjögurra ungabarna fundust í geymslu

Bjarki Ármannsson skrifar
Frá Winnipeg.
Frá Winnipeg. Vísir/Getty
Lík fjögurra ungabarna fundust í geymsluplássi í borginni Winnipeg í Kanada í gær. Lögregla fann líkin eftir ábendingu frá starfsmanni geymslunnar.

BBC greinir frá. Þeir lögreglumenn sem fara með rannsókn málsins segja líkamsleifarnar ekki passa við lýsingu á neinum ungabörnum sem lýst hefur verið eftir í borginni.

Í samtali við kanadíska fjölmiðla segir Eric Hofley, talsmaður lögreglu, að líkfundurinn sé „lygilega sorglegur.“ Ekki er enn vitað hversu lengi lík barnanna voru geymd á staðnum en þau verða rannsökuð frekar á næstunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×