Erlent

Lík á víð og dreif í Sýrlandi

skjáskot/daily mail
Jarðneskar leifar sýrlenskra hermanna eru að sjá á víð og dreif á götum borga og bæja Sýrlands. Á myndbandi sem Daily mail birti í dag má sjá fólk - konur og börn - ganga fram á lík hermannanna á götum borgarinnar Raqqa. Þau eru afar illa leikin og mörg hver hálshöggvin.

Fólkið virðist lítið sem ekkert kippa sér upp við það enda er hryllingur sem þessi orðinn nær daglegt brauð hjá Sýrlendingum flestum.

Myndbandið sem um ræðir er tekið í júlí í borginni Raqqa, sem er eitt höfuðvígi Íslamska ríkisins sem samtökin lögðu undir sig á síðasta ári.

Athugið. Varað er við myndum og myndbandi sem fylgja þessari frétt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×