Innlent

Liggur ekki fyrir hvar Birna keypti sér mat á göngu sinni um miðbæinn

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Grímur Grímsson yfirmaður rannsóknar á hvarfi Birnu Brjánsdóttur, segir að verið sé að skoða gögn úr eftirlitsmyndavélum og tæknideild skoði skóna. Rannsókn á lífssýnum sé þó afar tímafrek.
Grímur Grímsson yfirmaður rannsóknar á hvarfi Birnu Brjánsdóttur, segir að verið sé að skoða gögn úr eftirlitsmyndavélum og tæknideild skoði skóna. Rannsókn á lífssýnum sé þó afar tímafrek. vísir/anton brink
Rannsóknardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu reynir að púsla saman brotunum til að kortleggja nákvæmlega för Birnu Brjánsdóttur frá því hún yfirgaf skemmtistaðinn Húrra og þar til síðast sást til hennar á eftirlitsmyndavél við Laugaveg um tuttugu og fimm mínútum síðar.

Tæknideild lögreglu handlagði í hádeginu í dag rauða Kia Rio bifreið sem kemur heim og saman við þá sem lýst hefur verið eftir í fjölmiðlum. Ekki hefur náðst í lögreglu til að spyrja út í fundinn.

Forgangsraða upptökum

Grímur Grímsson, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni sem stýrir rannsókn málsins, segir í samtali við Vísi að verið sé að óska eftir gögnum og upplýsingum úr myndavélum alls staðar. Til dæmis við Hafnarfjarðarhöfn þar sem skór, sem allt bendir til þess að séu Birnu, fundust í gærkvöldi. 

Skoðun stendur yfir á upptökum úr eftirlitsmyndavélum við Hafnarfjarðarhöfn. Grímur bendir á að um margar myndavélar sé að ræða, mikið myndefni og ekki sé hægt að horfa á allt. Þá eigi eftir að fá efni úr fleiri vélum. 

„Við verðum að forgangsraða því sem við horfum á,“ segir Grímur.

Í myndskeiði sem lögregla birti síðdegis í gær mátti sjá skot úr þremur eftirlitsmyndavélum sést að Birna var að borða eitthvað á göngu sinni. Sá sem afgreiddi hana var mögulega sá síðasti til að ræða við Birnu áður en hún hvarf sporlaust.

Óljóst hvar maturinn var keyptur

Grímur segir að ekki sé enn ljóst hvar hún keypti sér mat og því hafi enn ekki verið rætt við viðkomandi. 

Þá hefur tæknideild skóna undir höndum. Grímur segir alla skoðun á lífssýnum afar tímafreka jafnvel þótt málið sé í algjörum forgangi.

Fram kom í hádegisfréttum Bylgjunnar að það er skoðun lögreglu að taka þar eftirlitsmyndavélakerfi miðborgarinnar í gagngerra endurskoðun. Þá liggur fyrir að lögregla vinnur hörðum höndum að því að skoða símagögn frá því umrædda nótt eftir úrskurð héraðsdóms í morgun.

 


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×