Menning

Lífshætta í Útvarpsleikhúsinu

Friðrika Benónýsdóttir skrifar
Þórey byggir Lífshættu á tveimur verkum Jakobínu Sigurðardóttur.
Þórey byggir Lífshættu á tveimur verkum Jakobínu Sigurðardóttur. Vísir/Daníel
„Verkið er byggt á tveimur sögum eftir Jakobínu Sigurðardóttur, annars vegar smásögu sem heitir Lífshætta og birtist í Sjö vindur gráar árið 1970 og hins vegar skáldsögunni Í sama klefa frá 1981,“ segir Þórey Sigþórsdóttir leikkona, spurð um útvarpsleikrit hennar Lífshættu sem frumflutt verður í Útvarpsleikhúsinu á sunnudaginn. „Að mestu leyti er þetta texti Jakobínu, enda er það mjög flottur texti, en ég raða honum upp á nýtt og bæti inn í nokkrum atriðum.“



Það sem gerir þetta verk einstakt er stílbragð sem tæplega væri hægt að beita nema í útvarpsleikriti: Í leikritinu er notuð upptaka á rödd Jakobínu Sigurðardóttur þegar hún las sögu sína, Í sama klefa, í útvarpið árið 1989. Þannig fer Jakobína, sem lést árið 1994, með eitt aðalhlutverkið í leikritinu.



Flutningurinn hefst klukkan 13 á sunnudaginn. Leikstjóri er Þórey Sigþórsdóttir og um hljóðvinnslu sá Einar Sigurðsson.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×