Lífið

Lífs eða liðinn? Blóðugur Jon Snow í auglýsingu fyrir næstu þáttaröð Game of Thrones

Bjarki Ármannsson skrifar
Er þessi maður dáinn fyrir fullt og allt?
Er þessi maður dáinn fyrir fullt og allt? Mynd/HBO
Sjötta þáttaröð sjónvarpsþáttaraðarinnar geysivinsælu Game of Thrones hefur göngu sína á HBO og á Stöð 2 í apríl næstkomandi. Ný auglýsing sem HBO birti á Facebook-síðu sinni fyrr í dag hefur vakið gríðarmikla athygli en á henni sést Jon Snow, ein aðalsöguhetja þáttanna, blóðugur og niðurlútur.

Athugið: Þeir sem ekki hafa séð fimmtu þáttaröð Game of Thrones eða lesið bókina A Dance with Dragons og vilja ekki vita neitt um það sem á sér þar stað ættu ekki að lesa þessa frétt til enda.

Mikil óvissa hefur ríkt meðal aðdáenda þáttanna um framtíð Jon Snow, sem virtist í lok síðustu þáttaraðar stunginn til bana í uppreisn í herbúðum sínum á Veggnum í norðurhluta Westeros. Getgátur hafa verið uppi um það hvort Snow sé í raun dáinn fyrir fullt og allt, þar sem allskonar töfra og kukl er að finna í sagnaheimi þáttanna og fátt því til fyrirstöðu að menn rísi upp frá dauðum.

Hvort sem Snow er lífs eða liðinn er ljóst að mikil eftirvænting er eftir næstu þáttaröð, sem verður sú fyrsta sem byggir ekki á útkomnum bókum George R. R. Martin. Lokaþáttur fimmtu þáttaraðar var sá sem mældist með mest áhorf í sögu Game of Thrones þrátt fyrir að hann þyrfti að keppa við úrslitakeppnina í NBA-deildinni í körfubolta um áhorf.

APRIL. #GoTSeason6 #GameofThrones

Posted by Game of Thrones on 23. nóvember 2015

Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×