Lífeyrissjóður bankamanna átti engin hlutabréf í íslensku bönkunum

Vísir Innlent 08. febrúar 2012 20:04
Lífeyrissjóður bankamanna átti engin hlutabréf í íslensku bönkunum
Mynd/stöð 2
Lóa Pind Aldísardóttir skrifar:
Lífeyrissjóður bankamanna átti ekki krónu í hlutabréfum íslensku bankanna þegar þeir hrundu í október 2008. Sjóðurinn kom langtum betur undan hruni en stærstu lífeyrissjóðir landsins.

„Þegar að þessi markaður hrynur, þá hrynja lífeyrissjóðirnir að sjálfsögðu líka eða verða fyrir skakkaföllum, þetta er veruleikinn," sagði Ögmundur Jónasson, innanríkisráðherra, í viðtali um helgina - en það urðu ekki allir sjóðirnir fyrir sömu skakkaföllum samkvæmt úttetktarefnd lífeyrissjóðanna.

Ef við skoðum raunávöxtun - sem þýðir ávöxtun peninganna umfram verðbólgu - þriggja sjóða frá árinu 2005 sést að stærsti lífeyrissjóður fólks á almennum vinnuarkaði - lífeyrissjóður verslunarmanna -hagnaðist vel árið 2005 um 16% (16,1%), ávöxtunin hrapar árið 2007 en síðan er fjórðungstap (mínus 24,2%) hrunárið.

Svipað var uppi á teningnum hjá stærsta lífeyrissjóði landsins - LSR - sem var með fína ávöxtun 2005 (14,3%), rúm fjórtán prósent, lægri árið á eftir (10,9%) - en tapar svo gríðarlega hrunárið mikla, eða röskum 25 prósentum (mínus 25,3%).

Staðan er hins vegar allt önnur hjá Lífeyrissjóði bankamanna, ávöxtun er ágæt - og býsna góð í annarri deild sjóðsins árið 2005, tæp ellefu prósent, (10,8%) sömuleiðis árið á eftir - en tapið á hrunárinu er ekkert í líkingu við tap stóru sjóðanna - eða mínus 9,6%.

Framkvæmdastjóri Lífeyrissjóðs bankamanna baðst undan viðtali í dag en svaraði spurningum fréttastofu í tölvupósti.

Hann útskýrir hversu þokkalega sjóðurinn kom undan hruni - með því að Lífeyrissjóður bankamanna hafi að mestu fjárfest í ríkistryggðum skuldabréfum og verðtryggðum innlánsreikningum. Ekki mikil áhættusækni þar.

Sjóðurinn hafi strax árið 2003 ákveðið að selja hlutabréf sem hann átti - og lokið því að mestu löngu fyrir hrun, eða árið 2005. Bankamenn höfðu því ekki meiri trú á bönkunum en svo að árið 2008 átti lífeyrissjóður þeirra ekki krónu í hlutabréfum í íslensku bönkunum.

Fleiri fréttir - Innlent

Innlent 25. maí. 2012 17:50

Harður árekstur í Hafnarfirði

Harður tveggja bíla árekstur varð á gatnamótum Hafnarfjarðarvegar og Álftanesvegar fyrir s...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 16:55

Ólafur og Þóra jöfn samkvæmt nýrri könnun MMR

Nákvæmlega sami fjöldi myndi kjósa Þóru Arnórsdóttur og Ólaf Ragnar Grímsson í forsetakosn...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 17:32

Kannabis í kjallara

Tvö hundruð grömm af marijúana í sölupakkningum fundust við húsleit í kjallaraíbúð í miðbo...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 16:33

Segir aðgerðirnar bitna mest á höfuðborgarsvæðinu

"Þessar aðgerðir bitna mest á höfuðborgarsvæðinu, meirihluti þeirra sem láta af störfum er...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 15:47

Grunaðir innbrotsþjófar úrskurðaðir í gæsluvarðhald

Tveir karlar á þrítugsaldri hafa verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald til 1. júní að kröfu lö...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 15:39

Hlakkar til að hefja störf á nýjum vettvangi

Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, segist hlakka til að hefja störf hjá OPUS lö...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 15:37

Hvetur til áhlaups á Landsbankann

Jens Garðar Helgason, formaður bæjarráðs í Fjarðabyggð, hvetur íbúa á Fáskrúðsfirði og Esk...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 17:34

Þriðjungur ökumanna óku of hratt

Brot 33 ökumanna voru mynduð í Langarima í Reykjavík í dag. Samkvæmt tilkynningu lögreglu ...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 16:30

Safna hjólum fyrir efnaminni börn

Hjól sem standa óhreyfð inni í bílskúr geta nú öðlast nýtt líf. Barnaheill og hjólreiðakep...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 14:21

Björn Valur: "Það er eitthvað súrt við þetta“

"Þetta slær menn,“ segir Björn Valur Gíslason, þingflokksformaður Vinstrihreyfingari...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 13:40

Krakkar í Álfhólsskóla komu færandi hendi

Hressir krakkar í 7 EJ í Álfhólsskóla í Kópavogi komu með gömul hjól og gáfu í söfnun Barn...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 13:26

Yfirlögregluþjónn kærir falsaða undirskrift á lista Ástþórs

Daníel Guðjónsson, yfirlögregluþjónn á Akureyri, hefur kært fölsun á undirskrift sinni á m...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 12:28

Segir eðlilegt að lögreglan rannsaki framboðslista

Ástþór Magnússon forsetaframbjóðandi hefur skilað hátt í 200 undirskriftum til viðbótar í ...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 12:25

Óupplýst hver stóð á bak við stærsta fíkniefnainnflutning síðasta árs

Enn er óupplýst hverjir stóðu að innflutningi tíu kílóa af amfetamíni og rúmlega átta þúsu...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 12:23

Fangelsismálastjóri: Reynslulausn fylgja ströng skilyrði

Rúnar Bjarki Ríkharðsson, sem fékk einn þyngsta dóm sem fallið hefur hér á landi, fyrir mo...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 11:38

Geir Haarde kominn í nýja vinnu

Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, hefur gengið til liðs við OPUS lögmenn sem r...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 11:27

Með loftbyssu og skotfæri í Leifsstöð

Karlmaður var með loftbyssu og skotfæri í fórum sínum í Flugstöð Leifs Eiríkssonar í fyrra...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 11:16

Borgin kaupir dráttarvélar fyrir 160 milljónir

Reykjavíkurborg áformar að kaupa dráttarvélar fyrir 160 milljónir króna á næstunni. Bréf f...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 11:10

Ákærður fyrir hættulega líkamsárás

Tuttugu og átta ára gamall karlmaður hefur verið ákærður fyrir sérstaklega hættulega líkam...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 10:28

Bjóða upp á nettengingu í háloftunum

Þeir sem fljúga með flugfélaginu Norwegian frá Keflavík til Osló í sumar geta verið netten...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 09:55

Fundu fíkniefni á farþega

Lögreglan á Akranesi stöðvaði í gærkvöldi bifreið sem var á ferð við bæinn. Þrír menn reyn...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 09:30

Tæplega fimm ára fangelsi í Straumsvíkurmálinu

Sævar Sverrisson, höfuðpaurinn í Straumsvíkurmáinu, var dæmdur í fjögurra og hálfs árs ósk...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 08:59

Dómur kveðinn upp í stóru fíkniefnamáli

Dómur verður kveðinn upp í einu stærsta fíkniefnamáli síðasta árs klukkan korter yfir níu ...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 06:18

Ólafur Ragnar tekur forystu

Stuðningur við áframhaldandi setu Ólafs Ragnars Grímssonar í embætti forseta hefur aukist ...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 08:00

Vinnuhópur meti afnám hafta

Íslensk stjórnvöld og framkvæmdastjórn Evrópu tilkynntu í gær um myndun sameiginlegs vinnu...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 07:30

Tilraun til hættulegrar árásar

Hæstiréttur staðfesti í gær dóm yfir 38 ára gömlum karlmanni, Herði Þráinssyni, fyrir fjöl...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 07:30

Tugir mála á leið til sérstaks saksóknara

Skattrannsóknarstjóri hefur sent 66 mál til sérstaks saksóknara og tugir til viðbótar eru ...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 07:00

Reglur hertar vegna Annþórs og Barkar

Öryggisgangur á Litla-Hrauni verður rýmdur fyrir tvo fanga sem grunaðir eru um manndráp áð...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 06:30

Málflutningur í september

Munnlegur málflutningur í máli ESA gegn Íslandi fyrir EFTA-dómstólnum vegna Icesave hefst ...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 06:00

Kosið um sameiningu í haust

Íbúar Garðabæjar og Álftaness munu greiða atkvæði um það í haust hvort sameina eigi sveita...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 06:00

Hefta vind og binda kolefni

Vísbendingar eru um að aukinn trjágróður og byggð innan borgarmarka Reykjavíkur hafi dregi...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 06:00

Herferðin kom til af nauðsyn

Lækkun á veiðigjaldi frá því sem nú er í frumvarpi ríkisstjórnarinnar skiptir ekki máli. F...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 05:30

Brjóstabollan gaf 1,5 milljónir

Landssamband bakarameistara, LABAK, safnaði 1,5 milljónum króna til styrktar grunnrannsókn...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 05:30

Boðar skoðun á innra skipulagi embættisins

Verklagsreglur hjá sérstökum saksóknara verða endurskoðaðar í kjölfar þess að embættið kær...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 05:00

50 milljónir gegn glæpastarfsemi

Allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis beinir þeim tilmælum til innanríkisráðherra að und...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 05:00

50 missa vinnuna í hagræðingu

Starfsmönnum Landsbanka Íslands fækkar um 50 um mánaðamótin vegna hagræðingaraðgerða. Átta...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 04:30

Sendu Samkeppniseftirliti kvörtun

Wow air hefur kært til Samkeppniseftirlitsins synjun IGS, dótturfélags Icelandair, á því a...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 04:00

Segir jafnréttismál í ólestri

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segir ríkisstjórnina ekki ...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 21:34

Verjandi líkti al-Thani málinu við mál Mladic

Ragnar H. Hall, verjandi Ólafs Ólafssonar, í al Thani málinu líkti stöðu sakborninga þess ...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 21:30

Björk fékk Webby verðlaunin

Björk Guðmundsdóttur voru veitt Webby verðlaunin í vikunni í flokknum listamaður ársins. ...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 21:28

Búinn að skila meðmælendalista

„Við erum búin að skila meðmælendalistunum," segir Hannes Bjarnason, forsetaframbjóð...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 20:30

Íslendingar duga ekki á Drekasvæðið - gefast upp

Útgerðarmaðurinn sem er á leið í olíuleit á Drekasvæðinu segir að ekki þýði lengur að hafa...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 20:00

"Menntaskólakerfið er undirlagt af kannabisneyslu"

Magnús Stefánsson, forvarnarfulltrúi, hefur miklar áhyggjur af aukinni neyslu ungmenna á k...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 19:56

Jóhanna og Füle ræddu gjaldeyrishöftin

Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, fundaði í dag með Stefan Füle, framkvæmdastjóra ...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 19:30

Catalina lenti á Reykjavíkurflugvelli

Catalina flugbáturinn, sem verður helsti sýningargripur flugdagsins í Reykjavík, lenti á R...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 18:49

Verjandi Barkar furðar sig á umfjöllun fjölmiðla

Verjandi Barkar Birgissonar, sem grunaður er um að hafa banað mann á Litla Hrauni 17. maí ...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 18:45

Íhuga að hætta við komu skemmtiferðaskips vegna tollalaga

Franskt félag íhugar að hætta við fyrirhugaða siglingu skemmtiferðaskips við Íslandsstrend...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 18:30

Fjölskyldufyrirtæki tapaði gengismáli

Skuldastaða yfir þúsund fyrirtækja er í uppnámi eftir að Hæstiréttur sýknaði Lýsingu nú sí...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 17:58

Hæstiréttur sýknar Fylki

Hæstiréttur sýknaði í dag Íþróttafélagið Fylkir af kröfum Sveins Rafns Eiðssonar en hann s...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 16:58

Byssumaður reyndist vera leikari

Sem betur fer eru útköll lögreglu stundum byggð á misskilningi. Þannig var því t.d. farið ...  

Meira
  • Fréttir
  • Sport
  • Viðskipti
  • Lífið

Fréttir eftir mánuði

Þú ert hér: Forsíða / Fréttir / Innlent / Lífeyrissjóður bankamanna átti engin hlutabréf í íslensku bönkunum