Lífeyrissjóðirnir plataðir

Fréttablaðið Fastir pennar 08. febrúar 2012 14:00
Þórður Snær Júlíusson skrifar pistilinn Bankahólfið í Markaðinn í Fréttablaðinu.
Þórður Snær Júlíusson skrifar pistilinn Bankahólfið í Markaðinn í Fréttablaðinu.
Bankahólfið - Þórður Snær Júlíusson skrifar:
Forsvarsmenn lífeyrissjóða keppast nú um að túlka niðurstöðu nefndar sem gerði úttekt á starfsemi sjóðanna fyrir hrun sér í hag eða segja hana fulla af rangfærslum. Þeir virðast ekki ætla að taka helstu niðurstöðu skýrslunnar til sín. Þá að þeir voru, allt of oft, plataðir til að fjárfesta í vafasömum gerningum.

Þeir juku til dæmis gjaldmiðlavarnir sínar um rúmlega helming frá miðju ári 2007 og fram að bankahruni. Þetta gerðist á sama tíma og krónan var að veikjast og mikil umræða var í gangi í fjölmiðlum um að bankarnir væru sjálfir að fella krónuna.

Ein helsta röksemd lífeyrissjóðanna í deilum þeirra um uppgjör þessara samninga nú er sú að þeir hafi verið plataðir. Að sumir bankarnir hafi verið að gera nákvæmlega það sem allir voru að tala um í aðdraganda hrunsins, að fella vísvitandi krónuna til að auka hagnað sinn og vildarviðskipta sinna. Þessir samningar munu kosta sjóðina að minnsta kosti vel á fjórða tug milljarða.

Þá er ljóst að skilmálar óveðtryggðra fyrirtækjaskuldabréfa voru almennt of veikir, en lífeyrissjóðirnir hafa þegar tapað rúmlega 90 milljörðum króna á slíkum bréfum. Í skýrslunni segir að það megi „sjá að þeir sem náðu undirtökum í hlutafélagi, náðu ekki aðeins tangarhaldi á sjóðum félagsins, heldur gátu þeir einnig gefið út skuldabréf í nafni félagsins væri það í góðu áliti. Síðan mátti færa sjóðina og lánsféð í annað félag (eignarhaldsfélag) og skilja skelina eina eftir handa kröfuhöfunum til að bítast um". Með öðrum orðum þá var hlutafélögum sem voru „í góðu áliti" gert kleift að gefa út skuldabréf, selja lífeyrissjóðunum, færa síðan allar eignir frá útgefandanum og skilja ekkert eftir handa sjóðunum. Engir skilmálar voru settir til að koma í veg fyrir þetta. Séðir menn plötuðu sjóðina til að kaupa verðlausa pappíra.

Sjóðirnir virðast líka hafa verið plataðir til að taka þátt í hlutabréfaviðskiptum sem virtust byggð á vafasömum grunni. Í skýrslunni er til að mynda rakið hvernig sjóðirnir ákváðu að taka þátt í hlutabréfaútboði FL Group í desember 2007 þrátt fyrir að virði bréfa í félaginu hefði fallið mikið í aðdraganda þess. Tveimur mánuðum eftir hlutabréfaútboðið var tilkynnt um að tap FL Group á árinu 2007 hefði numið 67,3 milljörðum króna. Það getur varla verið að stjórnendur lífeyrissjóðanna hafi haft vitneskju um raunverulega stöðu FL Group á þessum tíma. Þeir hljóta að hafa verið plataðir.

Það skiptir ekki öllu máli hver krónutala taps sjóðanna var. Það skiptir ekki máli frá hvaða degi það er reiknað eða miðað við hvaða gengisvísitölu. Það sem skiptir máli er að forsvarsmenn lífeyrissjóðanna kynntu sér fjárfestingarnar oft á tíðum ekki nægilega vel. Þeir stóðu ekki nægilegan vörð um peningana okkar. Það var of auðvelt að plata þá.

Athugið. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Vísir hvetur lesendur til að halda sig við málefnalega umræðu. Einnig áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi eða ósæmilegar athugasemdir.

Fleiri fréttir - Fastir pennar

Fastir pennar 25. maí. 2012 12:53

Útlendingar og Íslendingar

Stjórnarfar í Kína er ömurlegt. Sérstaklega læt ég ógeðslega ritskoðunartilburði fara í ta...  

Meira
Fastir pennar 25. maí. 2012 06:00

Raunhæfa planið

Þegar gjaldeyrishöft voru sett á í kjölfar hrunsins töldu flestir þau tímabundna ráðstöfun...  

Meira
Fastir pennar 25. maí. 2012 06:00

Umsókn um málfrelsi

Fyrir seinustu alþingiskosningar bauð RÚV framboðunum að fá ókeypis kynningartíma í sjónva...  

Meira
Fastir pennar 24. maí. 2012 06:00

Hin "sterka vísindahyggja“

Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra skrifaði athyglisverða grein hér í blaðið í síðust...  

Meira
Fastir pennar 23. maí. 2012 06:00

Kostur á kjarabót

Undanfarin ár hafa Íslendingar sem hyggja á fasteignakaup getað farið inn á vefsíður Íbúða...  

Meira
Fastir pennar 22. maí. 2012 06:00

Atkvæðaveiðigjald

Ríkisstjórnin kynnti í síðustu viku með talsverðum lúðrablæstri svokallaða fjárfestingaáæt...  

Meira
Fastir pennar 22. maí. 2012 06:00

Velferðarráðherra og sérgreinalæknar?

Í umræðunni undanfarið hefur verið tíðrætt um gjöld vegna komu til sérfræðilækna og svokal...  

Meira
Fastir pennar 21. maí. 2012 20:00

Er meyjarhaftið mýta?

Sæl, Sigga Dögg. Ég las greinina þína um mýtuna um þröngu píkuna og var mjög hrifin. Mig l...  

Meira
Fastir pennar 21. maí. 2012 06:00

Hinn ómissandi óþarfi

Listahátíðin í Reykjavík var alltaf stórviðburður í lífi föður míns....  

Meira
Fastir pennar 21. maí. 2012 06:00

Langtímaatvinnuleysi gefinn gaumur

Eftir langt skeið þar sem atvinnuleysi var nánast óþekkt á Íslandi skall það á af þunga ve...  

Meira
Fastir pennar 19. maí. 2012 06:00

Goðsögnum hnekkt

Háskóli Íslands hefur kannað hvernig einkunnir nemenda skiptast eftir þeim framhaldsskólum...  

Meira
Fastir pennar 19. maí. 2012 06:00

Uppvakningur tekinn í fóstur

Sagt var að siðfræði margra þeirra sem áttu og stjórnuðu gömlu bönkunum fyrir hrun hefði r...  

Meira
Fastir pennar 18. maí. 2012 11:03

Til varnar Suðurnesjum

Pabbi vann tvo vetur í Grindavík eftir að hann kláraði kennaranám, frá 1972 til 1974. Pabb...  

Meira
Fastir pennar 18. maí. 2012 08:00

Lög lygum líkust

Í frumvarpi að lögum um fjölmiðla sem nú liggur fyrir þinginu er lagt til að útlendingar u...  

Meira
Fastir pennar 18. maí. 2012 06:00

Ríkisbónus

Í desember 2009 var samið um uppgjör milli gamla og nýja Landsbankans. Í því fólst meðal a...  

Meira
Fastir pennar 17. maí. 2012 06:00

Óttinn við upplýsingar

Þórunn Sveinbjarnardóttir, fyrrverandi þingmaður Samfylkingarinnar, skrifaði grein hér í b...  

Meira
Fastir pennar 17. maí. 2012 06:00

Útlendingarnir ógurlegu

Allir hafa lent í einhverjum vandræðum með nágranna sína. Lengi var saga hvers lands líka ...  

Meira
Fastir pennar 16. maí. 2012 06:00

Brjótið lög!

Íslensk stjórnvöld hafa um langt skeið sett mikinn þrýsting á lífeyrissjóði landsins um að...  

Meira
Fastir pennar 15. maí. 2012 08:00

Tímamót í mannréttindabaráttu

Það eru merkileg tímamót í réttindabaráttu samkynhneigðra þegar valdamesti maður heims, Ba...  

Meira
Fastir pennar 15. maí. 2012 06:00

Dómur Landsdóms - fyrri hluti

Hinn 23. apríl sl. kvað Landsdómur upp dóm í máli fyrrverandi forsætisráðherra. Hann marka...  

Meira
Fastir pennar 14. maí. 2012 09:14

Það gefur á bátinn …

Það eru ekki margar stéttir sem njóta almennrar virðingar í samfélaginu....  

Meira
Fastir pennar 14. maí. 2012 09:14

Skýrar línur

Ólafur Ragnar Grímsson forsetaframbjóðandi birtist landsmönnum í gamalkunnugum, pólitískum...  

Meira
Fastir pennar 14. maí. 2012 03:13

Heimilisreksturinn

Ég og konan mín keyptum okkar fyrstu íbúð fyrr á þessu ári. Samhliða því fórum við yfir re...  

Meira
Fastir pennar 12. maí. 2012 06:00

Pólitík eða gæði

Vísindarannsóknir á Íslandi eru fjársveltar. Þar að auki er alltof stórum hluta þeirra tak...  

Meira
Fastir pennar 12. maí. 2012 06:00

Málþófið

Í tímaþröng eru mál þæfð í öllum þjóðþingum. Tímaþröng er klípa sem ríkisstjórnir koma sér...  

Meira

Mest lesið: Umræðan

Nýjast á Vísi

Fréttablaðið

  • Forsíða Fréttablaðsins
  • Lifid
  • Allt

Stöð2

  • Ísland í dag
  • Kvöldfréttir
  • Veðurfréttir
Þú ert hér: Forsíða / Umræðan / Fastir pennar / Lífeyrissjóðirnir plataðir