Innlent

Lífeyrissjóðadómur gæti fælt fólk frá stjórnarstörfum

Ingvar Haraldsson skrifar
Benedikt Jóhannesson
Benedikt Jóhannesson
Dómur Héraðsdóms Reykjavíkur í máli lífeyrissjóðsins Lífsverks gegn VÍS og fyrrverandi stjórn og framkvæmdastjóra lífeyrissjóðsins gæti fælt fólk frá störfum fyrir lífeyrissjóði og haft í för með sér að laun stjórnarmanna lífeyrissjóða þurfi að hækka verulega. Þetta er mat Benedikt Jóhannessonar tryggingastærðfræðings.

Fyrrverandi stjórn og framkvæmdastjóri lífeyrissjóðsins voru dæmd til að greiða lífeyrissjóðnum samanlagt 36 milljónir króna auk dráttarvaxta, samtals ríflega 50 milljónir króna, vegna tveggja fjárfestinga lífeyrissjóðsins á árinu 2008.

„Ég held að þetta muni ekki auðvelda að fá fólk til sitja í stjórn lífeyrissjóðs,“ segir Þorbjörn Guðmundsson, formaður Landssamtaka lífeyrissjóða, um dóminn.

VÍS var einnig dæmt til að greiða lífeyrissjóðnum 1,2 milljarða vegna stjórnendatryggingar lífeyrissjóðsins. „Þetta eru ný skilaboð, auðvitað hafa menn alltaf gert sér grein fyrir ábyrgðinni sem fylgir stjórnarsetu, en nú er hún orðin fjárhagsleg,“ segir Þorbjörn. Fara þurfi yfir málið þannig að ábyrgð stjórnarmanna sé skýrari en hún sé í dag.

„Menn verða þá kannski líka tregari við að taka svona stórar ákvarðanir. Menn reyna að kanna það hvað tryggingin dekkar og taka þá aldrei stærri fjárfestingaákvörðun en það,“ segir Benedikt.

Búast megi við því að stjórnarlaun lífeyrissjóða þurfi að hækka þar sem áhætta og ábyrgð sem fylgi starfinu sé meiri en áður hafi verið talið að mati Benedikts. Stjórnarlaun hjá Sameinaða lífeyrissjóðnum, þar sem Þorbjörn á sæti, eru 88 þúsund krónur á mánuði. VÍS hyggst áfrýja dómnum til Hæstaréttar.

Greinin birtist fyrst í Fréttablaðinu þann 29. apríl.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×