Skoðun

Lífeyrir á að hækka í 400 þúsund fyrir skatt!

Björgvin Guðmundsson skrifar
Alþingi hefur komið saman á ný eftir jólaleyfi. Ég tel, að eitt fyrsta verk þingsins eigi að vera það að leiðrétta kjör aldraðra og öryrkja. Þau kjör, sem öldruðum og öryrkjum bjóðast í dag eru ekki boðleg. Þau voru úrelt um leið og þau tóku gildi um síðustu áramót. Félag eldri borgara i Reykjavík segir, að þessi lægsti lífeyrir verði að hækka. Ég er að sjálfsögðu að tala um kjör þeirra eldri borgara og öryrkja, sem eingöngu hafa lífeyri almannatrygginga.

Fyrri ríkisstjórn lét undan

Fyrrverandi ríkisstjórn ætlaði upphaflega ekki að hækka lífeyri þessa hóps um eina einustu krónu. Það átti að hafa þennan lægsta lífeyri óbreyttan. En vegna mikilla mótmæla eldri borgara í ræðu og riti; fylgt eftir með stórum mótmælafundi í Háskólabíói, lét ríkisstjórnin undan síga og ákvað örlitla hækkun á lífeyri. Hækkunin var þessi: Hjá þeim, sem voru í hjónabandi eða sambúð, var hækkunin 12 þúsund krónur á mánuði. Lífeyrir fór í 197 þúsund kr. á mánuði eftir skatt. Hjá einhleypum var hækkunin þessi: 20 þúsund kr. á mánuði. Lífeyrir fór í 227 þúsund á mánuði eftir skatt. Þessar upphæðir eru að sjálfsögðu alltof lágar og engin leið að lifa af svo litlum lífeyri. Það er í rauninni furðulegt, að fyrrverandi ríkisstjórn skyldi telja þessar upphæðir ásættanlegar.

Þarf 400 þúsund á mánuði fyrir skatt

Hvað þarf eldri borgari og öryrki mikið sér til framfærslu? Hvað þarf að hækka lífeyrinn mikið til þess að hann sé sómasamlegur? Samkvæmt neyslukönnun Hagstofu Íslands (könnun á meðaltalsútgjöldum heimila í landinu) er meðaltalsneyslan 321 þúsund kr. á mánuði hjá einhleypingum. Engir skattar eru inni í þeirri tölu. Talan er því sambærileg upphæð lífeyris aldraðra einhleypinga eftir skatt. Fyrir skatt eru það rúmlega 400 þúsund kr. Þetta eru m.ö.o. þær upphæðir, sem ég tel hæfilegar fyrir aldraða og öryrkja.

Engar ráðagerðir hjá ríkisstjórninni um hækkanir

Ríkisstjórnin hefur lagt fram á Alþingi tillögu til þingsályktunar um ríkisfjármálaáætlun til næstu 5 ára. Í tengslum við framlagningu áætlunarinnar hefur komið fram hjá ríkisstjórninni, að ekki sé unnt að auka útgjöld til innviða. Það þýðir, að ekki er meiningin að verja neinu nýju fjármagni til þess að bæta kjör aldraðra og öryrkja og heldur ekki til heilbrigðiskerfsins þó það heiti svo, að sá málaflokkur eigi að hafa forgang. En slík yfirlýsing án fjármagns er marklaus. Ríkisstjórnin boðar algera kyrrstöðu. Er ekki eðlilegt, að Íslendingar fái að njóta sambærilegrar samneyslu, sama velferðarkerfis og aðrar Norðurlandaþjóðir? Talsvert vantar á, að svo sé. Góðærið hér á að gera það kleift að ná því marki.

Greinin birtist fyrst í Fréttablaðinu




Skoðun

Skoðun

Saman gegn ríkisofbeldi

Vilhjálmur Yngvi Hjálmarsson,Örlygur Steinar Arnaldsson,Sigurhjörtur Pálmason,Simon Valentin Hirt,Kristbjörg Arna E. Þorvaldsdóttir,Ari Logn,Margrét Rut Eddudóttir skrifar

Sjá meira


×