Innlent

Líf vill leiða lista Vinstri grænna í borginni

Atli Ísleifsson skrifar
Líf Magneudóttir varð forseti borgarstjórnar í september 2016.
Líf Magneudóttir varð forseti borgarstjórnar í september 2016. Aðsent
Líf Magneudóttir, borgarfulltrúi og forseti borgarstjórnar, sækist eftir því að leiða lista flokksins í borgarstjórnarkosningunum sem fram fara í lok maí.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Líf. Líf var kosin forseti borgarstjórnar í lok september 2016 þegar hún tók sæti í borgarstjórn og borgarráði. Hún var varaborgarfulltrúi á árunum 2014 til 2016, formaður mannréttindaráðs, varaformaður skóla- og frístundaráðs og fulltrúi í stjórn Faxaflóahafna. Á kjörtímabilinu 2010 til 2014 átti hún sæti í skóla- og frístundaráði borgarinnar.

Hún er menntaður grunnskólakennari, er í sambúð með Snorra Stefánssyni lögmanni og hagfræðingi. Þau eiga fjögur börn á aldrinum fimm til sautján ára og búa í Vesturbæ Reykjavíkur.

„Næstu ár eiga eftir að einkennast af örum vexti á öllum sviðum borgarinnar og við þurfum að setja kraft í að takast á við þá vaxtarverki sem fylgja stækkandi borg. Það verður gert með aukinni uppbyggingu húsnæðis, styrkingu almenningssamgangna, eflingu félagslegra- og efnahagslegra innviða með áherslu á þær stoðir sem varða börn og barnafjölskyldur. Þetta eru allt þættir sem snerta daglegt líf borgarbúa með einum eða öðrum hætti. Því skiptir máli að velja flokka sem hafa skýra sýn á þróun borgarinnar til langs tíma, geta hlustað og framkvæmt og átt í góðu samtali við öll þau sem gera þessa borg að því sem hún er. Þannig framboð er Vinstrihreyfingin - grænt framboð og þannig framboð vil ég leiða ásamt öflugum og fjölmennum hópi félaga minna til sigurs í vor,“ segir meðal annars í tilkynningunni frá Líf.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×