Lífið

Líður betur 33 ára en 23 ára

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
vísir/getty
Leikkonan Jessica Alba prýðir forsíðu tímaritsins Self og tjáir sig meðal annars um hvernig það sé að vera komin á fertugsaldurinn.

„Ég hugsaði: Aaaa! Ég er ekki á þrítugsaldrinum lengur! Hvað þýðir það? En mér líður betur 33 ára en 23 ára, jafnvel betur en mér leið þegar ég var þrítug,“ segir Jessica.

Hún giftist Cash Warren í maí árið 2008 og þau eiga saman tvær dætur, Honor Marie, sex ára, og Haven Garner, þriggja ára. Hún segir nauðsynlegt að hitta vinkonur sínar stundum og kvarta undan eiginmanninum.

„Maður þarf að fara út með stelpunum til að kvarta yfir eiginmanninum eða hverjum sem er. Maður skemmtir sér og síðan getur maður notið vinnunnar og verið stoltur af henni í staðinn fyrir að hún tæmi mann og verði manni byrði.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×