Fótbolti

Liðin sem komust í 32 liða úrslit Evrópudeildarinnar | Bara tvö ensk lið í pottinum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Kalifa Coulibaly og félagar í Gent komust áfram eftir sigurmark á fjórðu mínútu í uppbótartíma.
Kalifa Coulibaly og félagar í Gent komust áfram eftir sigurmark á fjórðu mínútu í uppbótartíma. Vísir/EPA
Lokaumferðin í riðlakeppni Evrópudeildarinnar fór fram í kvöld og þá kom endanlega í ljós hvaða 32 lið verða í pottinum þegar dregið verið í 32 liða úrslitin á mánudaginn.

Manchester United vann sinn leik á útivelli og komst áfram í kvöld en jafntefli á heimavelli dugði ekki Southampton sem er úr leik.

Fenerbahce kláraði sinn leik á móti Feyenoord í Hollandi og vann riðilinn. Úrslitin þýddu líka að Manchester United hefði mátt tapa á útivelli á móti botnliði Zorya Luhansk. Mörk frá Henrikh Mkhitaryan og Zlatan Ibrahimović sáu hinsvegar til þess að United vann 2-0 sigur.

Southampton nægði marklaust jafntefli á heimavelli á móti Hapoel Be'er Sheva frá Ísrael en Ísraelsmennirnir skoruðu þrettán mínútum fyrir leikslok. Southampton þurfti þar með tvö mörk og þeir náðu bara einu sem kom ekki fyrr en í uppbótartíma.

Það varð að fresta leik Sassuolo og Genk vegna þoku en það hefur engin áhrif á útkomuna því úrslitin voru ráðin í F-riðli og Genk var komið áfram.

Landar þeirra í Gent unnu hinsvegar dramatískasta sigur kvöldsins því Kalifa Coulibaly skoraði sigurmark liðsins á fjórðu mínútu í uppbótartíma á útivelli á móti tyrkneska liðinu Konyaspor.

Markið hans Coulibaly kom Gent upp fyrir portúgalska liðið Braga sem tapaði á sama tíma á móti úkraínska liðinu Shakhtar Donetsk.

Hér fyrir neðan má sjá hvaða lið eru komin áfram og enn neðar má síðan sjá öll úrslitin í leikjum kvöldsins.

Sigurvegarar riðlanna tólf:

Fenerbahce frá Tyrklandi (A-riðill)

APOEL frá Kýpur (B)

Saint-Étienne frá Frakklandi (C)

Zenit Saint Petersburg frá Rússlandi (D)

Roma frá Ítalíu (E)

Athletic Bilbao frá Spáni (F)

Ajax frá Hollandi (G)

Shakhtar Donetsk frá Úkraínu (H)

Schalke 04 frá Þýskalandi (I)

Fiorentina frá Ítalíu (J)

Sparta Prag frá Tékklandi (K)

Osmanlıspor frá Tyrklandi (L)

Liðin sem lentu í öðru sæti í riðlinum:

Manchester United frá Englandi (A-riðill)

Olympiacos frá Grikklandi (B)

Anderlecht frá Belgíu (C)

AZ Alkmaar frá Hollandi (D)

Astra Giurgiu frá Rúmeníu (E)

Genk frá Belgíu (F)

Celta Vigo frá Spáni (G)

Gent frá Belgíu (H)

Krasnodar frá Rússlandi (I)

PAOK frá Grikklandi (J)

Hapoel Be'er Sheva frá Ísrael (K)

Villarreal frá Spáni (L)

Liðin sem koma úr Meistaradeildinni

Í fyrsta styrkleikaflokki:

FC Kaupmannahöfn frá Danmörku

Lyon frá Frakklandi

Tottenham frá Englandi

Besiktas frá Tyrklandi

Í öðrum styrkleikaflokki

Rostov frá Rússlandi

Borussia Mönchengladbach frá Þýskalandi

Legia Varsjá frá Póllandi

Ludogorets frá Búlgaríu




Fleiri fréttir

Sjá meira


×