Fótbolti

Liðið í 2. sæti heimslistans rekur þjálfarann

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Wilmots var með 64% vinningshlutfall sem þjálfari Belgíu.
Wilmots var með 64% vinningshlutfall sem þjálfari Belgíu. vísir/epa
Marc Wilmots er hættur sem þjálfari belgíska landsliðsins í fótbolta eftir fjögurra ára starf.

Fá lið í heiminum eru jafn vel mönnuð og það belgíska en það situr í 2. sæti heimslista FIFA.

Þrátt fyrir þennan sterka mannskap töpuðu Belgar 3-1 fyrir Wales í 8-liða úrslitum á EM í Frakklandi. Belgía féll einnig úr leik í 8-liða úrslitum á HM í Brasilíu fyrir tveimur árum.

Wilmots fékk nokkuð harða gagnrýni á meðan á EM stóð en hann þótti aldrei ná því besta út úr belgíska liðinu.

Þrátt fyrir gagnrýnina á störf Wilmots fóru Belgar úr 54. sæti heimslistans og á topp hans og unnu 34 af 51 leikjum undir stjórn hans.

Wilmots lék á sínum tíma 70 landsleiki fyrir Belgíu og skoraði 28 mörk. Hann sat einnig á belgíska þinginu í tvö ár.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×