Erlent

Liðhlaupar og almennir borgarar myrtir

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Fjöldi hefur fallið fyrir hendi liðsmanna Íslamska ríkisins.
Fjöldi hefur fallið fyrir hendi liðsmanna Íslamska ríkisins. vísir/afp
Skæruliðasamtökin sem kenna sig við Íslamska ríkið hafa myrt um 2.000 manns í Sýrlandi undanfarið hálft ár. Þetta kemur fram í tölum frá Sýrlensku mannréttindavaktinni.

Af þeim sem hafa fallið í valinn eru ríflega hundrað fyrrverandi liðsmenn samtakanna sem vildu yfirgefa þau. Meirihluti hinna voru almennir borgarar en hluti voru sýrlenskir hermenn.

Íslamska ríkið hefur náð nokkrum ítökum í Sýrlandi og Írak. Staðfestar tölur um mannfall á árinu í Írak liggja ekki fyrir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×