Líðan mannsins eftir atvikum góð 30. september 2009 23:58 Mynd/Teitur Jónasson
Líðan mannsins sem bjargað var úr brennandi húsi á Akureyri í kvöld er eftir atvikum góð en hann var lagður inn á lyfjadeild Fjórðungssjúkrahússins til eftirlits í nótt. Fram kemur á vef slökkviliðs Akureyrar að talið sé að eldurinn hafi kviknað út frá rafmagni en húsið er mikið mikið skemmt og þak þess ónýtt. Eldur kom upp í gömlu timburhúsi við Barmahlíð í Glerárhverfi á Akureyri í níunda tímanum í kvöld. Þegar slökkviliðið kom á staðinn logaði eldur upp úr þaki hússins. Á vef slökkviliðsins segir að reykkafarar hafi farið strax inn í húsið og fundu mann á sextugsaldri í svefnherbergi og björguðu honum út. Hann var með einhverja meðvitund en var fluttur með sjúkrabíl á slysadeild með reykeitrun. Eftir að reykkafarar höfðu leitað af sér allan grun um að fleiri væru í húsinu var farið í að ráða niðurlögum eldsins sem var mestur í þaki hússins. Þurfti að rífa þakið talsvert til að komast fyrir allan eld. Auk fimm manna vaktar slökkviliðsins á Akureyri voru kallaðar út tvær vaktir til viðbótar auk yfirmanna. Ennfremur voru tveir menn staddir á slökkvistöð sem voru á frívakt. Því var strax hægt að senda tvær slökkvibifreiðar auk sjúkrabíls á staðinn og hefja slökkvistörf strax auk þess að flytja manninn sem bjargað var á sjúkrahús. Samtals tóku 21 slökkviliðsmenn þátt í slökkvistarfinu í kvöld.
Tengdar fréttir Manni á sextugsaldri bjargað úr brennandi húsi á Akureyri 52 ára gömlum karlmanni var bjargað úr brennandi einbýlishúsi í Glerárhverfi á Akureyri í níunda tímanum í kvöld. Maðurinn var einn í húsinu þegar eldurinn kom upp og að sögn lögreglu var maðurinn með meðvitund þegar hann var fluttur á sjúkrahús til aðhlynningar. Slökkvistarf stendur yfir en töluvert mikinn reyk lagði frá húsinu sem er gamalt og stendur við Barmahlíð. 30. september 2009 21:31 Mest lesið Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Vaxtaplanið sé tímaskekkja Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Innlent „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Innlent „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Innlent Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi Innlent Fallið frá þróun nýrrar samevrópskrar herþotu Erlent Marius látinn laus Erlent Fleiri fréttir Rafvarnarvopn kom við sögu þar sem tilkynnandi um brot var handtekinn Vaxtaplanið sé tímaskekkja Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Aðalsteinn hleypur í skarðið „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Vilhjálmur sagði af sér þingmennsku Andmæla fundarboði aðalfundar Sósíalista Konukot og börn í brottfararstöð í brennidepli í kvöldfréttum Séra Guðni Már kveður Ísland Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi „Svaraðu spurningunni“ Sérsveitaraðgerð á Eskifirði Tjón upp á hundrað milljónir og eldsupptök ráðgáta Nær tvöföldun umsókna um meistaranám „Beinin af Jónasi skipta andskotans engu máli“ Verðlaunuðu Evrópusinna fyrir að sporna gegn óreiðu Leit að arftaka Höllu Bergþóru hafin: „Kemur í ljós“ Eldur í vinnuvél á Álfsnesi Vildi vita hvort varnarsamningi við Bandaríkin yrði teflt í tvísýnu með ESB-viðræðum Enn í lífshættulegu ástandi Lýsingar á ófremdarástandi við Konukot komi á óvart ESB á Alþingi, Konukot og sáttur Bubbi Samkomulag um landaheitið Ísland undirritað „Grundvallaratriði í rekstri að fólk komist til og frá“ Eftirlýstur hrækti á starfsmann skemmtistaðar og lögreglu Drengurinn fannst heill á húfi „Ofurnjósnaskip Pútíns“ í íslenskri lögsögu Sjá meira
Manni á sextugsaldri bjargað úr brennandi húsi á Akureyri 52 ára gömlum karlmanni var bjargað úr brennandi einbýlishúsi í Glerárhverfi á Akureyri í níunda tímanum í kvöld. Maðurinn var einn í húsinu þegar eldurinn kom upp og að sögn lögreglu var maðurinn með meðvitund þegar hann var fluttur á sjúkrahús til aðhlynningar. Slökkvistarf stendur yfir en töluvert mikinn reyk lagði frá húsinu sem er gamalt og stendur við Barmahlíð. 30. september 2009 21:31