Fótbolti

Lið Söru mætir Evrópumeisturunum

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Sara Björk Gunnarsdóttir.
Sara Björk Gunnarsdóttir. vísir/stefán

Í dag var dregið í átta liða úrslit í Meistaradeild kvenna í knattspyrnu og eitt Íslendingalið var í pottinum.

Það var sænska liðið Rosengård sem Sara Björk Gunnarsdóttir spilar með. Hennar lið fékk erfiðan drátt því Rosengård mun mæta þýska Evrópumeisturunum í Frankfurt.

Frankfurt skreið í átta liða úrslit eftir að hafa unnið lið Guðbjargar Gunnarsdóttur, LSK, eftir vítaspyrnukeppni í Þýskalandi.

Leikirnir fara fram í mars og fyrri leikurinn verður í Þýskalandi.

Átta liða úrslit:

Wolfsburg - Brescia

Frankfurt - Rosengård

Lyon - Slavia Prag

Barcelona - PSG

Undanúrslit:

Lyon/Slavia Prag - Barcelona/PSG

Wolfsburg/Brescia - Frankfurt/Rosengård




Fleiri fréttir

Sjá meira


×