Lífið

Lið Reykjavíkur sigraði í Útsvari

Atli Ísleifsson skrifar
Óttar Proppé, Silja Bára Ómarsdóttir og  Vera Illugadóttir skipuðu lið Reykjavíkur í kvöld.
Óttar Proppé, Silja Bára Ómarsdóttir og Vera Illugadóttir skipuðu lið Reykjavíkur í kvöld.
Lið Reykjavíkur sigraði lið Fljótsdalshéraðs í úrslitum Útsvars á RÚV í kvöld.

Úrslitin réðust á síðustu spurningunni þar sem Reykjavíkurliðið þurfti að svara fimmtán stiga spurningu til að tapa ekki keppninni. Reykvíkingar svöruðu spurningunni, sem var um líkklæði Jesú Krists, rétt og urðu lokatölur 70-66.

Lið Reykjavíkur skipuðu þau Vera Illugadóttir, Silja Bára Ómarsdóttir og Óttar Proppé, en þetta er annað árið í röð þar sem höfuðborgarbúar landa Útsvarstitlinum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×