Keppnistímabilið 2012 hefst á sunnudaginn þegar ástralski kappaksturinn verður ræstur í Melbourne. Það er langt síðan búist var við jafn jafnri og harðri keppni í Formúlú 1. Vísir hitar upp fyrir fyrsta mótið í vikunni og byrjar á kynningum á liðum og ökumönnum.
Alls munu tólf lið ræsa í Ástralíu. Þau eru Red Bull, McLaren, Ferrari, Mercedes, Lotus, Force India, Sauber, Torro Rosso, Williams, Caterham, HRT og Marussia. Tímabilið spannar 20 mót og hafa þau aldrei verið fleiri á einu tímabili.
Viku eftir ástralska kappaksturinn er flogið til Malasíu og ekið á Sepang brautinni.
Smellið á myndirnar til að sjá þær stærri.
Red Bull Racing Síðan árið 2005 hefur Red Bull tekið þátt í Formúlu 1 og hefur liðstjóranum Christian Horner tekist að byggja upp ógnarsterkt lið. Með Adrian Newey, sigursælast hönnuð í mótaröðinni, innanborðs er liðið talið lang sigurstranglegast á ráslínunni. Ekki skemmir að hafa Sebastian Vettel sem mætir fílelfdur til leiks í leit að þriðja heimsmeistaratitli sínum í röð. Mark Webber mun þó reyna að sjá til þess að takmark Vettels mistakist - allavega á meðan hann sjálfur á möguleik á titlinum.
Undirbúningstímabil liðsins hefur þó verið nokkuð strembið og eru margar vísbendingar um að yfirburðir liðsins verði alls ekki eins miklir og þeir voru í fyrra. Mark Webber sagði við fjölmiðla í Ástralíu í vikunni að Red Bull liðið hefði veikleika. Hvort hér sé aðeins um hernaðarbrögð að ræða verður ekki fullyrt hér.
Vodafone McLaren Mercedes Með Jenson Button og Lewis Hamilton um borð ætti McLaren að geta veitt Red Bull mestu samkeppnina í ár. Báðir ökumenn liðsins hafa orðið heimsmeistarar. Raunar fékk Jenson Button flest stig allra seinni hluta tímabilsins í fyrra. Lewis Hamilton upplifði hins vegar sitt erfiðasta tímabil á ferlinum. Fjölmiðlar hafa skrifað erfiðleika Hamiltons á einkalífið sem hefur ekki gengið neitt sérstaklega vel síðan hann varð heimsmeistari árið 2008. Hann kemur þó vel undan vetri, hefur fengið ráðrúm til að hreinsa hugann og ætti að geta fullnýtt ótrúlega hæfileika sína í titilbaráttunni.
Þá lítur bíllinn vel út, árennilegur og áreiðanlegur. Undirbúningstímabilið hefur gengið vel og gefur von um góða byrjun McLaren liðsins í ár.
Scuderia Ferrari Marlboro Erfiðleikar með rótæka hönnun F2012 bílsins hafa plagað Ferrari liðið í ár. Útlit er fyrir að liðið verði í eltingaleik við Red Bull, McLaren og Mercedes í byrjun tímabils. Ekki má þó gleyma að Fernando Alonso hefur áður sýnt að hann getur framkvæmt galdra í hvaða ökutæki sem er. Þannig sigraði hann í Silverstone í fyrra á misheppnuðum Ferrari bíl.
Árið verður hins vegar mikilvægt fyrir framtíð Felipe Massa hjá liðinu. Massa hefur ekki náð sér á strik eftir að hafa lent í alvarlegu óhappi í Ungverjalandi árið 2010. Síðan þá hefur árangurinn ekki verið Ferrari til sóma. Má Massa fara að óttast að fá ekki endurnýjaðan samning við ítalska risann standi hann sig ekki ár.
Athugið. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Vísir hvetur lesendur til að halda sig við málefnalega umræðu. Einnig áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi eða ósæmilegar athugasemdir.
McLaren-liðið í Formúlu 1 mun knýja bíla sína með Honda-vélum frá árinu 2015. McLaren hefur verið með Mercedes-vélar síðan 1995 og átti þýski bílaframleiðandinn hlut í liðinu þar til nýverið.
Meira
Sebastien Loeb, nífaldur heimsmeistari í rallý, segir Pólverjan Robert Kubica geta náð mun betri árangri í rallý en finnanum Kimi Raikkönen tókst. Kubica getur jafnvel barist um titilinn í heimsmeista...
Meira
Yfirmenn Lotus-liðsins í Formúlu 1 segja það væri ósanngjarnt gagnvart þeim liðum sem hafa náð árangrí með Pirelli-dekkin að breyta gúmmíblöndunni. Pirelli íhugar að gera breytingar fyrir breska kappa...
Meira
McLaren-liðið í Formúlu 1 hafnar því að Sergio Perez hafi verið beðinn um að taka því rólega í spænska kappakstrinum og berjast ekki við Jenson Button undir lokin. Ökumennirnir börðust af kappi í Bare...
Meira
Dietrich Mateschitz, eigandi Red Bull-liðsins í Formúlu 1, er mjög harðorður þegar hann talar um áhrif Pirelli-dekkjanna á kappaksturinn í ár. Liðið hans hefur undanfarið þurft að sætta sig við verri ...
Meira
Spánverjinn Fernando Alonso, ökumaður Ferrari-liðsins í Formúlu 1, vann sannfærandi sigur í kappakstrinum á Spáni í dag. Alonso hefur ekki unnið í Barcelona síðan árið 2006 og voru heimamenn því himin...
Meira
Mercedes-liðið mun ræsa báða bílana sína á fremstu tveimur rásstöðunum í spænska kappakstrinum á morgun. Nico Rosberg náð ráspól í tímatökunum og Lewis Hamilton varð annar. Heimsmeistarinn Sebastian V...
Meira
McLaren-liðinu gekk ekki vel á föstudagsæfingunum fyrir spánska kappaksturinn sem fram fóru í dag. Þeir Jenson Button og Sergio Perez náðu aðeins tólfta og þrettánda besta tíma á seinni æfingunni.
Meira
Þeir Sebastian Vettel og Fernando Alonso kepptust um að eiga besta tíma í æfingum dagsins fyrir kappaksturinn í Barceloan á Spáni sem fram fer um helgina. Vettel hafði betur í seinni æfingunni en Alon...
Meira
Nýtt refsikerfi sem keppnisliðin í Formúlu 1 ræddu sín á milli á Spáni í dag hefur verið samþykkt. Reglunum verður að öllum líkindum breytt í haust þannig að nýjar refsingar taka gildi á næsta ári.
Meira
Enn á ný hefur Lewis Hamilton, liðsmaður Mercedes í Formúlu 1, lýst yfir aðdáun sinni á Fernando Alonso, liðsmanni Ferrari. Þeir félagar hafa hins vegar ekki alltaf virt hvorn annan því árið 2007 spra...
Meira
Kimi Raikkönen, liðsmaður Lotus-liðsins í Formúlu 1, mun aka áfram fyrir sama lið á næsta ári ef Lotus nær að smíða öflugan bíl og halda Kimi í forystu. Gerard Lopez, eigandi liðsins er sannfærður um ...
Meira
Robert Kubica, pólverjinn sem varð í hræðilegu rallýslysi í febrúar 2010, segist vilja snúa aftur í Formúlu 1 sem fyrst enda sé það eina mótaröðin sem hann vilji taka þátt í. Kubica hefur verið í stíf...
Meira
Keppnisliðin í Formúlu 1 ætla að ræða nýtt refsikerfi fyrir ökumenn yfir keppnishelgina á Spáni eftir viku. Charlie Whiting, keppnisstjóri í formúlunni, ætlar að standa fyrir fundinum.
Meira
Fyrrum Formúlu 1-ökuþórinn, Juan-Pablo Montoya, sem keppir nú í NASCAR í Bandaríkjunum rétt missti af sigri í mótaröðinni í gær. Montoya var samt ánægður með að ná að klára mótið.
Meira
Sergio Perez, ökuþór McLaren-liðsins í Formúlu 1, segist vera mjög ánægður með árangur sinn í Barein-kappakstrinum. Hann endaði sjötti eftir grimma baráttu við Jenson Button, liðsfélaga sinn.
Meira
Bernie Ecclestone, alráður í Formúlu 1, segir nú að áætlanir um að skrá Formúlu 1 á hlutabréfamarkað í Singapúr á réttri braut. Markaðsskráningunni var frestað í fyrra vegna efnahagsástandsins í heimi...
Meira
Sjöfaldi heimsmeistarinn Micael Schumacher mun aka tveggja ára gömlu Formúlu 1- bíl af Mercedes-gerð um gömlu Nurburgring-brautina í Þýskalandi. Þar var hætt að keppa árið 1976 vegna þess hve hættuleg...
Meira
Sebastian Vettel var rétt í þessu að stýra Red Bull-bíl sínum til sigurs í Bareinkappakstrinum. Hann leiddi meginpart kappakstursins og var eldsnöggur allan tíman.
Meira
Heimsmeistarinn Sebastian Vettel var ásamt Fernando Alonso talinn líklegastur til að ná ráspól í tímatökum dagsin. Hann segir ráspólstíma Nico Rosbergs hafa verið óbætanlegan og hafa komið á óvart.
Meira
Það gerðist óvænt í tímatökum fyrir kappaksturinn í Barein í hádeginu að Nico Rosberg á Mercedes setti besta tíma og náði auðveldlega ráspól. Sebastian Vettel varð annar í Red Bull-bílnum.
Meira
Kimi Raikkönen var fljótastur um brautina í Barein á seinni æfingunni fyrir kappaksturinn þar í morgun. Felipe Massa átti besta tíma fyrri æfinganna.
Meira
Kimi Räikkönen, ökumaður Lotus-liðsins í Formúlu 1, sér enga ástæðu fyrir því að breyta dekkjunum sem Pirelli hefur skaffað liðunum í ár. Kappaksturinn sé alveg eins og í gamla daga.
Meira
Formúla 1 snýr aftur til Barein í skugga mótmæla þar sem staðið hafa í tæp tvö ár. Eins og í fyrra hafa mótmælin gegn konungsstjórninni á eyjunni í Persaflóa breyst í mótmæli gegn Formúlu 1.
Meira
Finnski ökuþórinn Heikki Kovalainen hefur verið endurráðinn til Caterham-liðsins sem tilraunaökuþór. Mun hann aka á föstudagsæfingum fyrir liðið í Barein síðar í vikunni.
Meira