Lífið

Liam Gallagher óþekkjanlegur úti á götu í London

Stefán Árni Pálsson skrifar
Hér má sjá hið venjulega útlit Gallagher.
Hér má sjá hið venjulega útlit Gallagher. vísir/getty
Söngvarinn Liam Gallagher, sem gerði garðinn frægan í hljómsveitinni Oasis, var óþekkjanlegur þegar hann skrapp í göngutúr með kærustunni sinni í London á dögunum.

Þau Debbie Gwyther fóru út í Norður-London og virtist kappanum líða nokkuð vel. Hann hefur verið á forsíðum slúðurblaðanna undanfarna tvo áratugi í Bretlandi.

Liam er þekktur fyrir sína hörðu ímynd og hefur hann oft verið á milli tannanna á fólki en hann hefur alltaf verið mikill og stór karakter.

Gallagher virðist vera að safna hári og var hann verulega sólbrúnn. Greinilega nýtt útlit hjá karlinum. Debbie Gwyther er fyrrverandi aðstoðarkona hans. 

Þetta er vægast sagt ólíkt honum, en menn þroskast með aldrinum. Stíllinn breytist sömuleiðis.mynd/mirror





Fleiri fréttir

Sjá meira


×