Formúla 1

Lewis Hamilton vann í Mexíkó | Spennan eykst

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Lewis Hamilton vann í Mexíkó.
Lewis Hamilton vann í Mexíkó. Vísir/Getty
Lewis Hamilton á Mercedes kom fyrstur í mark í mexíkóska kappakstrinum. Nico Rosberg á Mercedes varð annar og Max Verstappen á Red Bull varð þriðji í mark.

Munurinn í heimsmeistarakeppni ökumanna er því 19 stig þegar tvær keppnir eru eftir. Rosberg leiðir ennþá og Hamilton þarf að treysta á að Rosberg verði fyrir einhverjum óförum í þeim keppnum sem eru eftir. Verstappen var svo refsað og Vettel tók þá þriðja sætið af honum. 

Hamilton hélt forystunni í gegnum ræsinguna og tók að mynda sér gott forskot, um það bil fjórðung úr sekúndu á hring, til að byrja með.

Ræsingin batt enda á keppni Pascal Wehrlein á Manor eftir samstuð við Marcus Ericsson á Sauber. Esteban Gutierrez var upphafið af þessum árekstri. Öryggisbíllinn kom þá út og leiddi keppninna nokkra hringi.

Verstappen var fyrstur af fremstu mönnum til að taka þjónustuhlé og hann skipti yfir á meðal-hörð dekk sem virtust vera grundvöllur keppnisáætlanna allra fremstu manna.

Hamilton kom inn á 17. hring og Rosberg tók þar með forystuna í keppninni og Kimi Raikkonen og Sebatian Vettel komust á milli Mercedes manna í annað sæti. Rosberg og Raikkonen komu svo inn á 20. hring.

Sebastian Vettel fékk þriðja sætið eftir að keppninni var lokið. Þegar Verstappen hlaut refsingu.Vísir/Getty
Valtteri Bottas á Williams setti hraðamet í Formúlu 1 á 24. hring þegar hann náði 372,5 km/klst.

Vettel ætlaði greinilega bara að vera á einu þjónustuhléi í keppninni. Hann ók yfir 30 hringi á gangi af mjúkum dekkjum, sem þegar höfðu þurft að þola tímatökuna.

Þegar Vettel kom út á brautina á 33. hring var hann fyrir aftan Raikkonen, og í sjötta sæti. Allir fyrir framan hann áttu að því er virtist eftir að taka eitt þjónustuhlé. Vettel var því í ágætum málum um miðja keppni, eins og staðan leit út þá.

Daniel Ricciardo á Red Bull tók mjúku dekkin undir á 50. hring og hóf að sækja á Vettel.

Fremstu menn voru hins vegar ekkert á því að taka annað þjónustuhlé og því urðu sigurvonir Vettel að engu. Vettel gat hins vegar náð Verstappen og reynt að koma sér inn á verðlaunapall á eftir Mercedes mönnum.

Raikkonen skaut sér fram úr Nico Hulkenberg á Force India á 67. hring. Hulkenberg snérist við að reyna að verja stöðu sína.

Verstappen missti af fyrstu beygjunni þegar Vettel reyndi að skjóta sér fram úr.Verstappen fór yfir grasið í stað þess að taka beygju tvö. Verstappen kom inn á brautina á undan Vettel og þýski ökumaðurinn varð alveg brjálaður. Verstappen gaf sig ekki og hélt sínu þriðja sæti, þangað til dómarar keppninnar tóku ákvörðun um að veita honum fimm sekúndna refsingu.


Tengdar fréttir

Rosberg: Möguleikar mínir á morgun eru fínir

Lewis Hamilton náði sínum tíunda ráspól á tímabilinu í dag. Hann tók þar með stórt skref í áttina að því að minnka forskot Nico Rosberg í heimsmeistarakeppni ökumanna. Hver sagði hvað eftir tímatökuna?

Hamilton á ráspól í Mexíkó

Lewis Hamilton á Mercedes verður á ráspól í mexíkóska kappastrinum sem fer fram á morgun. Nico Rosberg á Mercedes varð annar og Max Verstappen á Red Bull varð þriðji.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×