Formúla 1

Lewis Hamilton vann í Austurríki

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Lewis Hamilton fékk fyrsta sætið upp í hendurnar í dag.
Lewis Hamilton fékk fyrsta sætið upp í hendurnar í dag. Vísir/Getty
Lewis Hamilton kom fyrstur í mark eftir dramatískan lokahring. Max Verstappen varð annar á Red Bull og Kimi Raikkonen varð þriðji á Ferrari.

Hamilton tókst að stela fyrsta sætinu af Nico Rosberg, liðsfélaga sínum. Munurinn á þeim er núna 11 stig, Rosberg í vil.

Jenson Button vann sig upp í annað sæti í ræsingu, Hulkenberg átti ekki góða ræsingu, hann spólaði af stað. Raikkonen var fljótur að fara að pressa á Button. Raikkonen tók annað sætið af Button á sjöunda hring.

Rosberg kom í kjölfarið á eftir Raikkonen fram úr Button, Max Verstappen á Red Bull tók strax fram úr Button eftir að Rosberg var farinn fram úr.

Hamilton hóf keppnina á últra-mjúkum dekkjum sem hann notaði í tímatökunni eins og margir, hann hins vegar lét þau endast lengur en nokkur annar. Ferrari menn voru fyrir aftan hann þegar hann kom loksins inn á 22. hring. Rosberg komst þá fram úr Hamilton.

Öryggisbíllinn kom út á hring 27 þegar hægra afturdekkið hvellsprakk á Ferrar bíl Sebastian Vettel á ráskafla brautarinnar. Vettel var þar með úr leik í keppninni. Vettel leiddi keppnina þegar dekkið sprakk. Þetta er annað skiptið sem Vettel fellur úr leik í ár.

Sebastian Vettel hvellsprengdi.Vísir/getty
Rosberg leiddi keppnina eftir að Vettel datt úr leik. Hamilton var beint fyrir aftan Rosberg og Verstappen þar fyrir aftan þegar keppnin var endurræst á hring 32 af 71.

Rosberg var á mjúkum dekkjum sem voru 11 hringjum eldri en mjúku dekkin sem Hamilton var með undir.

Hamilton kom inn á 55. hring og tók mjúku dekkin undir. Hann kom inn á undan Rosberg sem kom inn á næsta hring. Rosberg tók ofur-mjúku dekkin undir og hélt forystunni á Hamilton. Verstappen leiddi þá keppnina og Mercedes menn voru þar á eftir.

Rosberg náði svo Verstappen þegar ellefu hringir voru eftir og tók svo fljótlega fram úr honum. Hamilton hins vegar tapaði smá tíma fyrir aftan Verstappen. Hamilton komst fram úr Verstappen en var þá tæpum tveimur sekúndum á eftir Rosberg.

Hamilton og Rosberg lentu í samstuði á síðasta hring og brotnaði framvængurinn á bíl Rosberg. Rosberg tapaði fyrsta sætinu og endaði fjórði.


Tengdar fréttir

Lewis Hamilton á ráspól í Austurríki

Lewis Hamilton var fljótastur á Mercedes í tímatökunni fyrir austurríska kappaksturinn. Annar varð Nico Rosberg og Nico Hulkenberg varð þriðji á Force India.

Prost vann fyrri keppnina í London

Nicolas Prost á Renault e.dams var á ráspól ogvann keppnina en athyglin var annarsstaðar. Lucas di Grassi og Sebastian Buemi voru í harðri baráttu um heimsmeistaratitil ökumanna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×