Formúla 1

Lewis Hamilton vann á heimavelli

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Lewis Hamilton var í essinu sínu á blautri en þornandi braut í dag.
Lewis Hamilton var í essinu sínu á blautri en þornandi braut í dag. Vísir/Getty
Lewis Hamilton á Mercedes kom fyrstur í mark á Silerstone brautinni í dag. Nico Rosberg varð annar á Mercedes og Max Verstappen á Red Bull varð þriðji. Rosberg fékk refsingu sem færði hann niður í þriðja sæti. Hann fékk of ítarlegar upplýsingar í talstöðinni.

Bilið í heimsmeistarakeppni ökumanna er nú komið niður í eitt stig þegar 10 keppnum af 21 er lokið. Spennan magnast í heimsmeistarakeppni ökumanna.

Keppnin var ræst fyrir aftan öryggisbílinn vegna þess hve blaut brautin var. Það var mikil rigning fyrir keppnina. Þetta var í ellefta skipti í sögunni sem keppni er ræst fyrir afta öryggisbíl, annað skiptið á tímabilinu. Síðast var keppnin ræst fyrir aftan öryggisbíl í Mónakó.

Öryggisbíllinn kom inn eftir fimm hringi úti á brautinni þar sem bílarnir voru búnir að hreinsa mesta standandi vatnið af brautinni.

Það var halarófa af bílum sem fór inn beint á eftir öryggisbílnum til að taka milliregndekk undir.

Rosberg tapaði strax miklum tíma á Hamilton. Rosberg virtist ekki ráða við aðstæður. Verstappen gerði sig afar líklegan fyrir aftan Rosberg.

Sebastian Vettel var ellefti þegar hann kom inn á 15. hring. Vettel tók þurrdekk undir fyrstur allra. Kimi Raikkonen kom inn á næsta hring til að taka þurrdekk. Aðrir fylgdu svo í kjölfarið.

Verstappen hékk lengst frem á milliregndekkjunum, einum hring lengur en Hamilton og Rosberg. Verstappen kom út á undan Rosberg.

Red Bull átti góða helgi á Silverstone brautinni.Vísir/Getty
Fyrsta beygja brautarinnar var lang blautasta svæðið á brautinni og reyndist mörgum erfið þegar menn voru komnir á þurrdekk.

Helsta baráttan var á milli Rosberg og Verstappen. Verstappen varðist vel og Rosberg reyndi hring eftir hring að koamst fram úr til að ná öðru sætinu af Verstappen. Rosberg tókst loksins að komast fram úr Verstappen á 38 hring.

Rosberg reyndi þá að elta uppi Hamilton. Bilið á milli þeirra var rúmar átta sekúndur þegar Rosberg komst fram úr Verstappen.

Raikkonen tókst að stela fimmta sætinu af Sergio Perez á Force India á 46. hring eftir að hafa sótt jafnt og þétt á Perez lengi.

Rosberg lenti í vandræðum með sjöunda gírinn og fékk þær leiðbeiningar í gegnum talstöðina að nota sjöunda gírinn ekki. Honum var ráðlagt að skipta yfir hann. Verstappen nálgaðist þá óðfluga. Rosberg fékk töluverðar upplýsingar í gegnum talstöðina. Dómarar keppninnar tóku atvikið til skoðunar. Niðustaðan var sú að Rosberg hefði fengið of mikla aðstoð.

Verstappen tókst ekki að ná öðru sætinu til baka af Rosberg.

Hér fyrir neðan má sjá öll helstu úrslit helgarinnar.


Tengdar fréttir

Lewis Hamilton á ráspól á heimavelli

Lewis Hamilton verður á ráspól á Silverstone brautinni á morgun á Mercedes bílnum. Nico Rosberg verður annar og Max Verstappen þriðji á Red Bull.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×