Formúla 1

Lewis Hamilton á ráspól í Texas

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Lewis Hamilton var ekki ógnað í dag.
Lewis Hamilton var ekki ógnað í dag. Vísir/Getty
Lewis Hamilton á Mercedes var fljótastur í tímatökunni fyrir bandaríska kappaksturinn. Sebastian Vettel á Ferrari varð annar og Valtteri Bottas á Mercedes þriðji.

Ráspóllinn í Texas er ekkert sérstaklega mikilvægur en Hamilton stimplaði það inn í huga allra að hann er fljótastur á brautinni. Það hefur enginn geta skákað honum alla helgina. Einungis tvisvar af fimm keppnum sem fram hafa farið á brautinni hefur sá sem var á ráspól unnið.

Hamilton tókst að vera fljótastur á öllum þremur æfingunum fyrir kappaksturinn í Bandaríkjunum. Hann er sá fyrsti sem tekst að gera það í ár.

Fyrsta lota

Lance Stroll á Williams svínaði fyrir Romain Grosjean í lotunni og þurfti Grosjean að flýja út á gras á Haas bílnum til að forða árekstri. Kevin Magnussen á Haas svínaði svo á Sergio Perez á Force India sem kvartaði sáran í talstöðinni.

Þeir sem féllu út í lotunni voru: Sauber ökumennirnir, Stroll, nýliðinn Brendon Hartley á Toro Rosso og Magnussen.

Hamilton var fljótastur í lotunni, Carlos Sainz á Renault var fimmti í lotunni í sinni fyrstu tímatöku fyrir liðið.

Sebastian Vettel gerði hvað hann gat til að skáka Lewis Hamilton en uppskar ekki ráspól.Vísir/Getty
Önnur lota

Hamilton var fljótastur í lotunni á nýju brautarmeti. Nico Hulkenberg á Renault tók ekki þátt í annarri lotunni og tapaði því fyrir liðsfélaga í tímatöku í fyrsta skipti á árinu.

Á meðan komst Fernando Alonso áfram í þrjiðu lotuna, í fyrsta skipti sem McLaren kemst í þriðju umferð í Austin með Honda vél um borð.

Þeir sem féllu úr leik auk Hulkenberg voru: Grosejan á Haas, Stoffel Vandoorne á McLaren, Daniil Kvyat á Toro Rosso og Felipe Massa á Williams.

Þriðja lota

Hamilton byrjaði þriðju lotuna á nýju brautarmeti og virkaði ógnar hraður. Bottas var um hálfri sekúndu hægari en Hamilton eftir fyrri tilraun þeirra félaga.

Vettel stal svo öðru sætinu með afar sterkum hring. Bottas hélt þriðja sætinu og Daniel Ricciardo á Red Bull varð fjórði.


Tengdar fréttir

Fernando Alonso áfram hjá McLaren

Fernando Alonso, tvöfaldur heimsmeistari í Formúlu 1 verður áfram hjá McLaren liðinu á næsta ári. Hann hefur sagt að samningurinn sé til margra ára.

Max Verstappen áfram hjá Red Bull út árið 2020

Red Bull liðið tilkynnti í dag að einn eftirsóknarverðasti ökumaðurinn í Formúlu 1, Max Verstappen hafi skrifað undir nýjan samning við liðið. Hann verður í herbúðum þess út árið 2020.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×