Formúla 1

Lewis Hamilton á ráspól í Kína

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Hamilton á ferð í bleytunni í Kína
Hamilton á ferð í bleytunni í Kína Vísir/Getty
Lewis Hamilton náði ráspól í Kína en í næstu sætum voru Red Bull bílarnir þar sem Daniel Ricciardo náði öðru sæti á ráslínu og Sebastian Vettel því þriðja.

Það rigndi á brautinni í byrjun tímatökunnar og fór þriðja æfingin því fram á blautri braut. Ökumenn fikruðu sig áfram og mátuðu regn og milliregndekk við aðstæður á brautinni. Fórnarlömb fyrstu lotu tímatökunnar voru Max Chilton, Marcus Ericsson, Jules Bianchi, Kamui Kobayashi og Esteban Gutierrez.

Pastor Maldonado tók hinsvegar ekki þátt í tímatökunni, Lotus liðið náði ekki að skipta um vél í bíl hans í tæka tíð eftir þriðju æfinguna eftir að vélin hætti að skila afli á æfingunni vegna olíuleka. Það verður því undir dómurunum komið að leyfa honum að keppa á morgum.

Önnur lotan hófst á því að flestir ökumenn fóru út á milliregndekkjum. Þeir sem féllu út í annarri lotu voru Sergio Perez, Kevin Magnussen, Adrian Sutil, Daniil Kvyat, Jenson Button og Kimi Raikkonen.

Þriðja lotan var mjög spennandi, rigningin jókst örlítið á milli loka annarar lotu og upphafs þriðju lotu. Ökumenn freistuðu þess að fara strax í upphafi lotunnar á milliregndekk og ná að góðum tíma en brautin virtist lagast eftir því sem leið á lotuna.

Lewis Hamilton, Daniel Ricciardo og Sebastin Vettel sátu fyrir svörum blaðamanna eftir tímatökuna. Hamilton var nokkuð brattur í ljósi stöðunnar og ræddi möguleika sína.

„Það var sleipt úti á brautinni og það er mikilvægt að gera ekki mistök, sérstaklega með þessa tvo svona skammt undan að ýta á eftir manni. Bíllinn er hinsvegar góður og hefur liðið unnið mjög vel saman þessa helgina,“ sagði Hamilton.

„Það var mjög gaman að ná hrignum í lokin, ég átti augljóslega frekar erfitt alla tímatökuna en á síðasta dekkjaganginum nýtti ég tækifærið og náði að setja góðan tíma undir lokinn,“ sagði Ricciardo eftir tímatökuna.

„Við erum í bestu stöðunni til að reyna að gera þeim (Mercedes) erfitt fyrir á morgun, þeir eru þó sennilega of fljótir í þurru,“ sagði Vettel.

Niðurstaða tímatökunnar var:

1.Lewis Hamilton - Mercedes

2.Daniel Ricciardo - Red Bull

3.Sebastian Vettel - Red Bull

4.Nico Rosberg - Mercedes

5.Fernando Alonso - Ferrari

6.Felipe Massa - Williams

7.Valtteri Bottas - Williams

8.Nico Hulkenberg - Force India

9.Jean-Eric Vergne - Toro Rosso

10.Romain Grosjean - Lotus

11.Kimi Raikkonen - Ferrari

12.Jenson Button - McLaren

13.Daniil Kvyat - Toro Rosso

14.Adrian Sutil - Sauber

15.Kevin Magnussen - McLaren

16.Sergio Perez - Force India

17.Esteban Gutierrez - Sauber

18.Kamui Kobayashi - Caterham

19.Jules Bianchi - Marussia

20.Marcus Ericsson - Caterham

21.Max Chilton - Marussia

22.Pastor Maldonado - Lotus

Keppnin er á dagskrá Stöð 2 Sport klukkan 6:30 í fyrramálið.


Tengdar fréttir

Hamilton og Rosberg ræða málin

Nico Rosberg segir að hann og liðsfélagi hans hjá Mercedes muni setjast niður með liðiðnu fyrir kínverska kappaksturinn. Markmiðið er að hreinsa loftið eftir afar spennuþrungna keppni á milli þeirra í Bahrain.

Tveir titlar ekki nóg fyrir Alonso

Fernando Alonso segir að hann verði ekki áægður ef hann verður enn bara með tvo heimsmeistaratitla þegar hann hættir í Formúlu eitt.

Hamilton fljótastur á seinni æfingunni

Lewis Hamilton á Mercedes náði hraðasta hring á seinni föstudagsæfingunni fyrir Kínakappasturinn í formúlu eitt. Fernando Alonso á Ferrari varð annar. Nico Rosberg á hinum Mercedes bílnum varð þriðji, á undan Red Bull bílunum.

Fyrirsjáanlegar framfarir hjá Lotus

Tæknistjóri Lotus, Nick Chester trúir því að liðið muni fara að ná í stig aftur reglulega. Liðið hefur átt afar erfitt uppdráttar á tímabilinu og er enn stigalaust.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×