Formúla 1

Lewis Hamilton á ráspól í Ástralíu

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Lewis Hamilton var í sérflokki í dag.
Lewis Hamilton var í sérflokki í dag. Vísir/Getty
Lewis Hamilton á Mercedes náði ráspól í fyrstu keppni tímabilsins, liðsfélagi hans, Nico Rosberg varð annar og Sebastian Vettel varð þriðji á Ferrari.

Hamilton náði sínum 50. ráspól á ferlinum. Hann er kominn í hóp með Ayrton Senna og Michael Schumacher, þriggja manna hópur sem hefur náð 50 eða fleiri ráspólum. Rosberg átti ekki svar við hraða Hamilton. Baráttan í tímatökunni varð ekki eins mikil og lagt var upp með.

Fyrsta lota

Með nýju fyrirkomulagi í tímatökunni er meiri pressa á ökumönnum að gera ekki mistök. Þeir hafa ekki nema sjö mínútur í fyrstu lotu til að reyna að forðast niðurskurðinn. Eftir sjö mínútur datt hægasti ökumaðurinn út á 90 sekúndna fresti.

Pascal Wehrlein varð fyrsta fórnarlamb nýju tímatökunnar, liðsfélagi hans hjá Manor, Rio Haryanto. Esteban Gutierrez á Haas var næstur í röðinni og Romain Grosjean á Haas var þar á eftir.

Red Bull virtist sofna á verðinum því Daniil Kvyat féll úr leik í 18. sæti, hann náði ekki að gera atlögu að bættum tíma. Sömu sögu er að segja af Felipe Nasr, hann náði ekki að klára sína tilraun til að reyna að bæta sig. Marcus Ericsson á Sauber var síðasti maðurinn til að falla úr leik í fyrstu lotu.

Mönnum lá mikið á að komast út á brautina í dag.Vísir/Getty
Önnur lota

Í annarri lotu hafa ökumenn sex mínútur til að setja tíma sem er nógu góður til að forðast niðurskurð.

Renault mennirnir Kevin Magnussen og Jolyon Palmer voru fyrstir út úr annarri lotu. McLaren menn voru næstir út. Valtteri Bottas á Williams fylgdi í kjölfar McLaren manna. Force India mennirnir voru síðastir út í annarri lotu.

Þriðja lota

Í þriðju lotu hafa átta fljótustu ökumennirnir tækifæri til að komast í einvígi um ráspól. Niðurskurðurinn hefst eftir fimm mínútur í þriðju lotu.

Heimamaðurinn Daniel Ricciardo á Red Bull var fyrstur út í þriðju lotu. Carlos Sainz á Toro Rosso datt út næstur og Felipe Massa þar í kjölfarið á Williams bílnum. Verstappen varð fimmti og datt út næstur á Toro Rosso bílnum.

Einn fljúgandi hringur beið fjögurra efstu ökumanna en Kimi Raikkonen og Sebastian Vettel ákváðu að fara ekki út á brautina og létu Mercedes mönnum eftir að útkljá ráspól. Lítið varð úr þeirri baráttu, Rosberg átti einfaldlega ekki svar og gerðist sekur um mistök.

Hér fyrir neðan má sjá gagnvirkt brautarkort þar sem öll úrslit helgarinnar birtast og uppfærast eftir sem á líður.

Formúlu 1 keppnistímabilið hefst í Ástralíu um helgina. Keppnin fer fram klukkan 04:30 í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport. Tryggðu þér áskrift á 365.is.

 


Tengdar fréttir

Hver veltir Mercedes af stalli í Formúlu 1?

Nýtt keppnistímabil í Formúlu 1 hefst um helgina þegar keppt verður í Ástralíu. Heimsmeistarinn Lewis Hamilton vill vinna þriðja árið í röð en hann fær mikla samkeppni frá eigin liðsfélaga og Ferrari-mönnum.

Hamilton fljótastur en Rosberg endaði á varnarvegg

Lewis Hamilton var fljótastur á báðum föstudagsæfingum fyrir ástralska kappaksturinn. Daniil Kvyat var annar á fyrri æfingunni á Red Bull og Daniel Ricciardo á Red Bull þriðji.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×