Fótbolti

Lewandowski opinn fyrir því að vera áfram hjá Bayern München

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Lewandowski er markahæstur í þýsku deildinni með 21 mark.
Lewandowski er markahæstur í þýsku deildinni með 21 mark. vísir/getty
Robert Lewandowski segist opinn fyrir því að skrifa undir nýjan samning við Bayern München.

Pólski framherjinn hefur m.a. verið orðaður við Real Madrid í vetur og hann segist vera meðvitaður um áhuga annarra liða á honum. En þrátt fyrir það segir Lewandowski allt eins líklegt að hann verði áfram á Allianz Arena en núgildandi samningur hans rennur út árið 2019.

„Ég veit af áhuga erlendis frá en ég get vel hugsað mér að skrifa undir nýjan samning hér því við erum með frábært lið,“ sagði Lewandowski sem hefur skorað 31 mark í 30 leikjum á tímabilinu.

Í desember síðastliðnum framlengdu lykilmennirnir Thomas Müller, Javi Martínez, Jerome Boateng og Xabi Alonso samninga sína við Bayern sem Lewandowski kveðst ánægður með.

„Félagið er að búa sig undir framtíðina. Nýju samningarnir við Boateng og Müller sýna að Bayern getur haldið sínum bestu leikmönnum þrátt fyrir alla peningana í ensku úrvalsdeildinni,“ sagði Lewandowski sem kom til Bayern frá Borussia Dortmund sumarið 2014.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×